OLO[5:1–2]Drottinn, hlustaðu á orð mín. Heyr þú mína einlægu bæn.
5:2
OLO
5:3
OLOHlustaðu á kveinstafi mína, þú Guð, konungur minn, því að ég mun aldrei biðja til neins nema þín.
5:4
OLOÁ hverjum morgni horfi ég til himins, já til þín, og legg bænir mínar fram fyrir þig.
5:5
OLOÉg veit að þú fyrirlítur óguðleika og að þeir sem iðka hið illa fá ekki að dveljast hjá þér.
5:6
OLOHrokafullir syndarar standast augnaráð þitt ekki, því að þú hatar illgjörðir þeirra.
5:7
OLOÞú munt eyða þeim sem tala lygi og þú hefur andstyggð á morðum og svikum.
5:8
OLOEn hvað um mig? Af náð þinni fæ ég að ganga inn í musteri þitt, umvafinn vernd þinni og ást. Ég vil tilbiðja þig í djúpri lotningu.
5:9
OLODrottinn, leiddu mig eins og þú lofaðir mér, annars munu óvinir mínir sigra mig. Segðu mér skýrt hvað ég á að gera, og hvert ég á að fara,
5:10
OLOþví að þeir reyna að blekkja mig. Hjörtu þeirra eru full af illsku. Tortíming og dauði býr í ráðum þeirra og þeir nota svik og pretti sér til framdráttar.
5:11
OLOÓ, Guð láttu þá fá makleg málagjöld. Þeir lendi í eigin gildru. Hrintu þeim burt vegna hinna mörgu afbrota þeirra, því að þeir storka þér.
5:12
OLO[5:12–13]12En þeir sem treysta þér gleðjast og kætast. Þeir hrópa af gleði því þú verndar þá. Þeir sem elska þig gleðjast yfir þér. 13Því að þú, ó Guð, blessar hinn trúaða, þú verndar hann með skildi elsku þinnar.
Þýðingarnar þínar eru þær úr síðasta samanburði sem þú opnaðir með „Bera saman“ eða valdir að muna; á meðan engar slíkar eru til verða það þýðingarnar úr fyrsta samanburðinum sem er opnaður beint – úr bókamerki eða af tengli utan vefsins. Ef þýðingarnar eru að minnsta kosti tvær og þær hafa allar þennan stað opnast samanburðurinn án valforms.
Merktu þýðingar með stjörnu til að bæta þeim við eftirlæti.
Letur
Leturstærð
Í upphafi var Orðið og Orðið var hjá Guði og Orðið var Guð
Spilarar birtast án smells og fara ekki sjálfkrafa í gang; síða með myndbandi hefur strax samband við youtube.com. Á meðan stillingin er virk hlaðast myndbönd inn frá YouTube.
Hlaða myndböndum frá
Ef YouTube svarar ekki hleðst myndbandið inn frá þjóni vefsins, ef afrit er til staðar þar.
Endurstilla stillingar
Allar stillingar verða færðar aftur í sjálfgefin gildi. Ertu viss?