여러 번역본으로 본 요한계시록 6

비교할 번역본 선택

번역본을 선택하면 목록에 추가되며, 열은 목록 순서대로 나열됩니다.

  1. Lifandi Orð

Íslenska

한국어

Русский

Čeština

Беларуская

English

Українська

Deutsch

Polski

Español

Português

Türkçe

中文

Français

Italiano

Ἀρχαία Ἑλληνική

Српски / Srpski

Hrvatski

Eesti

Svenska

Magyar

Slovenčina

Suomi

Norsk bokmål

Tagalog

Cebuano

Hiligaynon

Nederlands

Български

Tiếng Việt

Bahasa Indonesia

ไทย

हिन्दी

English

  • JPS Tanakh
  • Targum Onkelos (Etheridge)

Deutsch

  • Byzantinischer Text
Lifandi Orð
6:1
OLO Nú sá ég að lambið rauf fyrsta innsiglið af bókinni og opnaði hana. Þá sagði ein af verunum fjórum, og rödd hennar líktist þrumugný: „Kom þú!“
6:2
OLO Ég sá hvítan hest og sá sem á honum sat hafði boga og honum var fengin kóróna. Síðan reið hann út til að vinna mikla sigra.
6:3
OLO Þegar lambið rauf annað innsiglið sagði önnur veran: „Kom þú!“
6:4
OLO Í þetta skipti kom rauður hestur í ljós. Þeim sem hann sat var fengið langt sverð, og auk þess gefið vald til að spilla friði og leiða ógnaröld yfir jörðina. Þá blossuðu upp styrjaldir og menn voru teknir af lífi.
6:5
OLO Þegar lambið hafði rofið þriðja innsiglið, heyrði ég þriðju veruna segja: „Kom þú!“ Þá sá ég svartan hest og hélt knapi hans á vog í hendi sér.
6:6
OLO Þá heyrðist rödd mitt á milli veranna fjögurra, sem sagði: „Brauðið kostar daglaun og þrjú pund af byggi kosta daglaun, en láttu olíuna og vínið standa í stað.“
6:7
OLO Þegar fjórða innsiglið rofnaði heyrði ég fjórðu veruna segja: „Kom þú!“
6:8
OLO Þá sá ég fölbleikan hest og sá sem hann sat hét Dauði. Á hæla hans kom annar hestur og hét knapi hans Hel. Þeim var gefið vald yfir fjórðungi jarðarinnar, svo að þeir gætu eytt lífi með styrjöldum, hungursneyðum, drepsóttum og villidýrum.
6:9
OLO Þegar lambið hafði rofið fimmta innsiglið, sá ég altari og fyrir neðan það voru sálir þeirra, sem deyddir höfðu verið fyrir að predika orð Guðs og fyrir vitnisburð sinn.
6:10
OLO Þessir hrópuðu hárri röddu til Drottins og sögðu: „Konungur konunganna, þú sem ert sannur og heilagur, hvað mun líða langur tími þar til þú dæmir íbúa jarðarinnar fyrir það sem þeir hafa gert okkur? Hvenær ætlar þú að hefna blóðs okkar á þeim sem lifa á jörðinni?“
6:11
OLO Hver þeirra um sig fékk nú hvíta skikkju og var þeim sagt að hvílast enn um stund eða þar til bræður þeirra, sem einnig þjóna Jesú, væru dánir fyrir trú sína og hefðu slegist í hóp þeirra.
6:12
OLO Nú sá ég lambið brjóta sjötta innsiglið. Þá varð mikill jarðskjálfti, sólin myrkvaðist og varð lík svörtu klæði og tunglið varð blóðrautt.
6:13
OLO Þá virtust stjörnur himinsins hrapa til jarðar – eins og þegar grænar fíkjur falla af fíkjutré, sem hristist í vindi.
6:14
OLO Himinhvolfið sviptist burt líkt og þegar blöð eru vafin saman, og fjöll og eyjar færast úr stað.
6:15
OLO Þá földu konungar jarðarinnar sig í hellum og klettum fjallanna, ásamt leiðtogum heimsins, auðmönnum hans, herforingjum og öllum öðrum, háum og lágum, frjálsum og ánauðugum.
6:16
OLO Og þeir hrópuðu til fjallanna og grátbændu þau: „Hrynjið yfir okkur og felið okkur fyrir ásjónu hans sem situr í hásætinu, og fyrir reiði lambsins,
6:17
OLO því að nú er dagur reiðinnar runninn upp, og hver fær þá staðist?“