Zjevení 6 v různých překladech
Lifandi Orð
6:1
OLO
Nú sá ég að lambið rauf fyrsta innsiglið af bókinni og opnaði hana. Þá sagði ein af verunum fjórum, og rödd hennar líktist þrumugný: „Kom þú!“
6:2
OLO
Ég sá hvítan hest og sá sem á honum sat hafði boga og honum var fengin kóróna. Síðan reið hann út til að vinna mikla sigra.
6:3
OLO
Þegar lambið rauf annað innsiglið sagði önnur veran: „Kom þú!“
6:4
OLO
Í þetta skipti kom rauður hestur í ljós. Þeim sem hann sat var fengið langt sverð, og auk þess gefið vald til að spilla friði og leiða ógnaröld yfir jörðina. Þá blossuðu upp styrjaldir og menn voru teknir af lífi.
6:5
OLO
Þegar lambið hafði rofið þriðja innsiglið, heyrði ég þriðju veruna segja: „Kom þú!“ Þá sá ég svartan hest og hélt knapi hans á vog í hendi sér.
6:6
OLO
Þá heyrðist rödd mitt á milli veranna fjögurra, sem sagði: „Brauðið kostar daglaun og þrjú pund af byggi kosta daglaun, en láttu olíuna og vínið standa í stað.“
6:7
OLO
Þegar fjórða innsiglið rofnaði heyrði ég fjórðu veruna segja: „Kom þú!“
6:8
OLO
Þá sá ég fölbleikan hest og sá sem hann sat hét Dauði. Á hæla hans kom annar hestur og hét knapi hans Hel. Þeim var gefið vald yfir fjórðungi jarðarinnar, svo að þeir gætu eytt lífi með styrjöldum, hungursneyðum, drepsóttum og villidýrum.
6:9
OLO
Þegar lambið hafði rofið fimmta innsiglið, sá ég altari og fyrir neðan það voru sálir þeirra, sem deyddir höfðu verið fyrir að predika orð Guðs og fyrir vitnisburð sinn.
6:10
OLO
Þessir hrópuðu hárri röddu til Drottins og sögðu: „Konungur konunganna, þú sem ert sannur og heilagur, hvað mun líða langur tími þar til þú dæmir íbúa jarðarinnar fyrir það sem þeir hafa gert okkur? Hvenær ætlar þú að hefna blóðs okkar á þeim sem lifa á jörðinni?“
6:11
OLO
Hver þeirra um sig fékk nú hvíta skikkju og var þeim sagt að hvílast enn um stund eða þar til bræður þeirra, sem einnig þjóna Jesú, væru dánir fyrir trú sína og hefðu slegist í hóp þeirra.
6:12
OLO
Nú sá ég lambið brjóta sjötta innsiglið. Þá varð mikill jarðskjálfti, sólin myrkvaðist og varð lík svörtu klæði og tunglið varð blóðrautt.
6:13
OLO
Þá virtust stjörnur himinsins hrapa til jarðar – eins og þegar grænar fíkjur falla af fíkjutré, sem hristist í vindi.
6:14
OLO
Himinhvolfið sviptist burt líkt og þegar blöð eru vafin saman, og fjöll og eyjar færast úr stað.
6:15
OLO
Þá földu konungar jarðarinnar sig í hellum og klettum fjallanna, ásamt leiðtogum heimsins, auðmönnum hans, herforingjum og öllum öðrum, háum og lágum, frjálsum og ánauðugum.
6:16
OLO
Og þeir hrópuðu til fjallanna og grátbændu þau: „Hrynjið yfir okkur og felið okkur fyrir ásjónu hans sem situr í hásætinu, og fyrir reiði lambsins,
6:17
OLO
því að nú er dagur reiðinnar runninn upp, og hver fær þá staðist?“