Salmene 69 i ulike oversettelser

Velg oversettelser å sammenligne

Velg en oversettelse for å legge den til i listen; kolonnene følger rekkefølgen i listen.

  1. Lifandi Orð

Íslenska

Русский

Čeština

Беларуская

English

Українська

Deutsch

Polski

Español

Português

Türkçe

中文

Français

Italiano

Српски / Srpski

Hrvatski

Svenska

Magyar

Tagalog

Cebuano

Hiligaynon

Nederlands

Tiếng Việt

ไทย

한국어

हिन्दी

Norsk bokmål

  • En Levende Bok

Русский

  • Десницкий
  • Кассиан

English

  • African International (Paraphrase, American)
  • African International (Paraphrase, British)
  • African International (Literal, American)
  • African International (Literal, British)
  • Majority Text
  • Targum Onkelos (Etheridge)
  • Text-Critical English

Deutsch

  • Byzantinischer Text

Polski

  • Słowo Życia

Español

  • Biblia Libre (Nuevo Testamento)

Português

  • Tradução para Tradutores

Türkçe

  • Temel Tercüme

中文

  • 易读圣经

Ἀρχαία Ἑλληνική

  • Textus Receptus
  • Patriarchal 1904
  • Solid Rock
  • Family 35
  • Text-Critical Greek

Hrvatski

  • Knjiga o Kristu

Čeština

  • Slovo na cestu

Eesti

  • Kaasaegne eesti

Magyar

  • Élet, igazság és világosság

Slovenčina

  • Nádej pre každého

Suomi

  • Elävä uutinen

Nederlands

  • Gods Boek

Български

  • Съвременен

Bahasa Indonesia

  • Mudah Dibaca
Lifandi Orð
69:1
OLO [69:1–2] Frelsaðu mig, ó Guð, því að vatnið hækkar sífellt
69:2
OLO
69:3
OLO og ég sekk æ dýpra í þessa botnlausu leðju.
69:4
OLO Ég er útgrátinn og örmagna, hálsinn þurr og sár og augun þrútin. Góði Guð, bjargaðu mér!
69:5
OLO Þeir eru margir sem hata mig að ástæðulausu, fjöldi manna sem brugga mér banaráð. Þó er ég saklaus. Þeir heimta að ég bæti það sem ég hef ekki brotið!
69:6
OLO Ó, Guð, þú þekkir heimsku mína og syndir.
69:7
OLO Drottinn Guð, þú sem ræður hersveitum himnanna, láttu mig ekki verða til hneykslunar þeim sem treysta þér. Þú Guð Ísraels, forðaðu mér frá því að valda þeim vonbrigðum,
69:8
OLO þó svo að þín vegna sé ég hæddur og smáður.
69:9
OLO Jafnvel bræður mínir sniðganga mig!
69:10
OLO Guð, þú ert í huga mér öllum stundum og um musteri þitt hugsa ég. Og vegna þess að ég held uppi málstað þínum, hata þeir mig, rétt eins og þig.
69:11
OLO Ég hef fastað og iðrast frammi fyrir þér, en þeir hæddu mig engu að síður.
69:12
OLO Ég klæddist hærusekk – tákni auðmýktar og iðrunar – og þá ortu þeir um mig níðvísu!
69:13
OLO Ég er nýjasta fréttin í bænum og jafnvel rónarnir spotta mig!
69:14
OLO En ég held áfram að biðja til þín, Drottinn, og gefst ekki upp, því að þú hlustar! Svaraðu mér með blessun þinni og miskunnaðu mér.
69:15
OLO Dragðu mig upp úr leðjunni, Drottinn, ég finn að ég er að sökkva! Forðaðu mér frá óvinum mínum, úr þessum hræðilega pytti!
69:16
OLO Láttu ekki flóðið taka mig, hringiðuna svelgja mig!
69:17
OLO Ó, Drottinn, svaraðu bænum mínum, vegna gæsku þinnar og náðar við mig.
69:18
OLO Snúðu ekki við mér bakinu, því að ég er í nauðum staddur! Flýttu þér! Komdu og frelsaðu mig!
69:19
OLO Drottinn, komdu og bjargaðu mér! Leystu mig undan ofríki óvina minna.
69:20
OLO Þú sérð þá og þekkir háðsglósur þeirra, hvernig þeir níða mig niður.
69:21
OLO Háðsyrði þeirra hafa sært mig djúpu sári og andi minn örmagnast. Ó, ef einhver hefði sýnt mér samúð og einhver viljað hugga mig!
69:22
OLO Þeir færðu mér eitraðan mat – malurt – og edik við þorstanum.
69:23
OLO Verði gleði þeirra að sorg og friður þeirra að skelfingu.
69:24
OLO Myrkur komi yfir þá, blinda og ringulreið.
69:25
OLO Reiði þín upptendrist gegn þeim og eldur þinn tortími þeim.
69:26
OLO Leggðu hús þeirra í rúst svo að þar búi enginn framar.
69:27
OLO Því að þeir ofsækja þann sem þú hefur slegið og hlæja að kvöl þess sem þú hefur gegnumstungið.
69:28
OLO Skráðu hjá þér allar syndir þeirra, já láttu enga gleymast.
69:29
OLO Strikaðu þá út af listanum yfir þá sem fá að lifa, leyfðu þeim ekki að njóta lífsins með réttlátum.
69:30
OLO Ó, Guð, frelsaðu mig úr þessari neyð! Ég veit að þú munt bjarga mér!
69:31
OLO Ég lofa Guð í ljóði, mikla hann með lofsöng.
69:32
OLO Það mun gleðja hann meira en margs konar fórnir.
69:33
OLO Hinir auðmjúku munu sjá að Drottinn hjálpar mér og þeir munu gleðjast. Já, gleðjist, þið sem leitið Guðs!
69:34
OLO Því að Drottinn heyrir hróp hinna snauðu, og snýr ekki við þeim bakinu.
69:35
OLO Himinn og jörð, lofið Drottin, og hafið og allt sem í því er!
69:36
OLO [69:36–37] 36Því að Guð mun frelsa Jerúsalem og endurreisa borgirnar í Júda og þjóð hans mun búa við öryggi. 37Börnin munu erfa landið og þeir sem elska Drottin njóta þar friðar og velgengni.
69:37
OLO