Psa SálmarnirPsalmen, sálmurpsalm SálmarnirHet boek Psalmen, sálmurpsalm 75

Vertalingen Vergelijken

Þökk sé þér Drottinn! Máttarverk þín staðfesta umhyggju þína.Psa 9:1; Psa 44:1

„Já,“ svarar Drottinn, „og þegar stundin er komin mun ég refsa öllum illgjörðamönnum! Psa 46:6Þótt jörðin nötri og íbúar hennar skjálfi af ótta, eru undirstöður hennar traustar, enda verk handa minna!“

Ég sagði hinum hrokafullu að láta af drambi sínu og illmennunum að hætta sínum ögrandi augnagotum, að láta af þrjósku og hroka. Velgengni og völd getur enginn þakkað sér sjálfum, allt eru það gjafir frá Guði. Hann upphefur einn, en niðurlægir annan. Psa 60:5Drottinn heldur á bikar fullum af freyðandi víni – það er dómurinn gegn illmennum heimsins. Þau skulu drekka hann í botn! En ég mun vegsama Guð um aldur og ævi. Luk 1:69Styrkur hinna óguðlegu verður að engu, en réttlátir skulu ríkja með reisn.Luk 1:69