Psa SálmarnirPsalmen, sálmurpsalm SálmarnirHet boek Psalmen, sálmurpsalm 97

Vertalingen Vergelijken

Drottinn er konungur! Allur heimurinn gleðjist! Fagnið þið eyjar við ysta haf!Psa 93:1; Psa 99:1

Tignarleg ský umlykja hann. Réttlæti og réttvísi eru undirstöður hásætis hans. Rev 10:1; Psa 89:14Eldur gengur út frá honum og eyðir öllum óvinum hans. Elding hans leiftrar og lýsir upp jörðina. Heimurinn skelfur af ótta. Rev 4:5; Psa 77:16Fjöllin bráðna eins og vax fyrir Drottni. Himnarnir kunngera réttlæti hans og allar þjóðir sjá dýrð hans.Psa 19:1

Allir skurðgoðadýrkendur verða til skammar – þeir sem stæra sig af falsguðum – því að allir slíkir guðir verða að beygja sig fyrir Drottni. Jerúsalem og borgirnar í Júda hafa heyrt af réttvísi þinni, Drottinn, og fagna, því að þú ríkir með reisn yfir allri jörðinni og ert hátt yfir alla aðra guði hafinn.Psa 135:5

Drottinn elskar þá sem hata hið illa. Hann verndar líf fylgjenda sinna og frelsar þá undan óguðlegum. Rom 12:9Ljós skal lýsa hinum réttlátu og gleði hlotnast hinum góðu. Psa 112:4Allir réttlátir fagni fyrir Drottni og vegsami hans heilaga nafn.Psa 32:11