HebHbr HebreabréfiðHebrajczyków, kaflirozdział Bréfið til HebreaList do Hebrajczyków, kaflirozdział 1

Przekłady

Guð hefur talað

Fyrr á tímum talaði Guð með ýmsu móti til forfeðra okkar fyrir milligöngu spámannanna (til dæmis í sýnum, draumum eða jafnvel augliti til auglitis) og sagði þeim þannig smátt og smátt frá fyrirætlunum sínum.1Pe 1:10

Á okkar dögum hefur hann hins vegar talað til okkar með tungu sonar síns, sem hann hefur gefið alla hluti. Sonarins vegna skapaði hann heiminn og allt sem í honum er.Psa 2:8; Jhn 1:3; Jhn 8:26; Jhn 15:15; Gal 4:4; Eph 1:10

Sonur Guðs endurspeglar dýrð Guðs og allt, sem sonurinn er og gerir, ber þess vitni að hann er Guð. Hann ríkir yfir alheimi með orðum sínum. Hann er sá sem dó til að hreinsa okkur og sýkna af ákæru syndarinnar og settist síðan í hið æðsta heiðurssæti við hlið Guðs almáttugs á himnum.Psa 110:1; 2Co 4:4; Eph 1:7; Col 1:15

Þannig varð hann englunum mun æðri og það sannar líka nafnið sem faðir hans gaf honum: „Sonur Guðs“, en það nafn er langtum æðra en nöfn og titlar englanna. Php 2:9 Guð hefur aldrei sagt svo við neinn af englum sínum: „Þú ert sonur minn og í dag gef ég þér heiður þann og tign sem fylgir nafni mínu.“ Þetta sagði hann hins vegar við Jesú og öðru sinni sagði hann: „Ég er faðir hans; hann er sonur minn.“ Þegar Guðs eingetni sonur kom til jarðarinnar sagði hann enn fremur: „Allir englar Guðs skulu tilbiðja hann.“Psa 2:7; Heb 5:5; Psa 97:7

Um engla sína segir Guð, að þeir séu sendiboðar, skjótir sem vindurinn og líkir eldslogum, Psa 104:4en um son sinn segir hann: „Ríki þitt, ó Guð, mun standa að eilífu og tilskipanir þínar eru góðar og réttlátar. Luk 1:32Guð, þú elskar réttlætið en hatar ranglætið, þess vegna hefur Guð þinn veitt þér meiri gleði en nokkrum öðrum.“Psa 45:6; Jhn 3:34; Act 4:27

Guð kallaði hann einnig „Drottin“ og sagði: „Drottinn, í upphafi skapaðir þú jörðina og himnarnir eru verk handa þinna. Þeir munu leysast upp og hverfa, en þú verður áfram. Þeir munu slitna eins og gömul flík, Mat 24:35sem þú dag einn leggur frá þér og færð þér nýja. Sjálfur munt þú aldrei breytast og ævi þín engan endi taka.“Psa 102:25

Hefur Guð nokkurn tíma sagt slíkt við engil, sem hann segir við son sinn: „Sittu hér í heiðurssætinu við hlið mér, þar til ég hef lagt alla óvini þína að fótum þér“?Psa 110:1; Mrk 12:36; Mrk 16:19; Eph 1:20

Nei, því englarnir eru aðeins andlegir sendiboðar Guðs, sendir til hjálpar og aðstoðar þeim, sem erfa eiga hjálpræði hans.Psa 34:7; Psa 91:11; Psa 103:21; Act 5:19