Psa Sálmarnir, sálmur Sálmarnir, sálmur 101
Ég vil syngja um réttlætið og miskunnsemina. Ég vil lofsyngja þér, ó Guð!Psa 89:1
Ég, konungurinn, vil kappkosta að lifa heiðarlega og ganga um heimili mitt í grandvarleik – hjálpaðu mér til þess!
Gefðu mér að forðast allt sem er gróft og ljótt – að fyrirlíta hið illa. Psa 139:21Já, ég vil ekki vera sjálfselskur og vondur. Psa 6:8Ég umber ekki þá sem baktala nágranna sinn, og hroka og dramb mun ég ekki þola. Ég leita uppi réttláta menn í landinu og kalla þá til starfa, að þeir búi hjá mér, – þeir einir sem grandvarir eru. Mrk 3:35Svikara og lygara þoli ég ekki í mínum húsum. Ég þagga niður í illmennunum í landinu og útrými úr borginni öllum óguðlegum.