PsaPs SálmarnirPsalmów, sálmurpsalm SálmarnirKsięga Psalmów, sálmurpsalm 107

Przekłady Porównaj

Þakkið Drottni, því að hann er góður og miskunn hans varir að eilífu. Hafi Drottinn frelsað þig, þá segðu frá því! Segðu öðrum frá því að hann hafi frelsað þig frá óvinum þínum.Psa 106:10

Hann leiddi hina útlægu heim frá ystu endimörkum jarðarinnar. Þeir ráfuðu heimilislausir um eyðimörkina, Heb 11:9; Heb 11:37; Heb 13:14hungraðir og þyrstir og að niðurlotum komnir. „Drottinn, hjálpaðu okkur!“ hrópuðu þeir, og hann svaraði bæn þeirra! Psa 22:5Hann leiddi þá í öruggt skjól, til byggilegrar borgar. Ó, að þetta fólk vildi nú lofa Drottin fyrir miskunn hans og öll hans dásamlegu verk, því að hann svalar þyrstri sál og mettar hungraðan gæðum.Psa 34:10; Psa 145:16

Hverjir eru þessir sem sitja í myrkri og skugga dauðans, þjáðir af eymd og volæði? Þeir gerðu uppreisn gegn Drottni, fyrirlitu hann, hinn hæsta Guð. Þess vegna beygði hann þá með mæðu. Þeir hrösuðu og enginn gat hjálpað þeim á fætur. Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni og hann bjargaði þeim! Hann leiddi þá út úr myrkri og skugga dauðans og braut fjötra þeirra. Þeir skulu lofa Drottin fyrir elsku hans og öll hans miskunnarverk! Því að hann mölvaði hlið dýflissunnar og braut sundur rimlana.Psa 116:16

Sumir kölluðu yfir sig ógæfu með heimsku sinni. Loks bauð þeim við öllum mat. Þeir sáu ekkert framundan nema dauðann. Þá kölluðu þeir til Drottins í neyð sinni og hann bjargaði þeim úr angist þeirra, kom þeim á réttan veg. Hann sendi út orð sitt og læknaði þá, hreif þá frá dyrum dauðans. Ó, að menn þessir vildu lofa Drottin fyrir elsku hans og öll hans dásemdarverk! Þeir þakki honum heilshugar og kunngjöri verk hans með gleði.Psa 50:14; Psa 116:17

Og svo eru þeir sem sigla um höfin, kaupmenn sem flytja vörur milli landa. Einnig þeir fá að reyna máttarverk Drottins. Hann kallar á storminn og lætur öldurnar rísa. Mat 8:24Skipin sveiflast til himins og hverfa í öldudali – öllum um borð fellst hugur í neyðinni. Þeir ramba og skjögra eins og drukknir menn og vita ekki sitt rjúkandi ráð. Þá hrópa þeir til Drottins í neyð sinni og hann frelsar þá. Hann kyrrir bæði sjó og vind. Mat 14:32Hvílík blessun að ná höfn og njóta lognsins! Ó, að þessir menn vildu þakka Drottni miskunn hans og öll hans dásemdarverk. Þeir lofi hann upphátt í söfnuðinum og í áheyrn leiðtoga Ísraels.

Hann þurrkar upp fljótin og gerir land óguðlegra að skorpinni saltsléttu. En hann kann líka að breyta auðninni í frjósama og vatnsríka vin. Þangað leiðir hann hungraða sem setjast þar að og byggja sér borgir, sá í akra, gróðursetja víngarða og afla afurða. Þannig blessar hann! Og þeir margfaldast stórum og fénaði þeirra fjölgar.

Sumir missa allt í ofsókn, þjáningu og sorg, Psa 44:25því að Guð sendir hrokafullum skömm og lætur tignarmenn ráfa um í rústum, en hann bjargar fátæklingum sem honum treysta, gefur þeim fjölda afkomenda og mikla hagsæld. Þetta sjá hinir guðhræddu og þeir gleðjast, meðan óguðlegir þegja í skömm.

Þú sem ert vitur, hugleiddu þetta! Hugsaðu um miskunn og kærleika Drottins.