PsaSl SálmarnirSalmos, sálmursalmo SálmarnirLivro dos Salmos, sálmursalmo 118

Traduções

Þakkið Drottni því að hann er góður! Elska hans varir að eilífu. Psa 136:1Söfnuður Ísraels lofi hann og segi: „Elska hans varir að eilífu!“ Og prestar Arons taki undir og syngi: „Elska hans varir að eilífu!“ Og heiðingjarnir sem trú hafa tekið segi: „Elska hans varir að eilífu.“

Í angist minni bað ég til Drottins. Hann svaraði mér og frelsaði mig. Ég er hans! Hvað skyldi ég þá óttast? Hvað geta dauðlegir menn gert mér? Psa 27:1; Psa 56:11; Rom 8:31Ég er vinur Drottins og hann hjálpar mér. Óvinir mínir skulu vara sig!Heb 13:6

Betra er að treysta Drottni, en að reiða sig á menn. Psa 62:8; Psa 84:12-13; Psa 108:12Öruggara er að leita hjálpar hans en stuðnings frá voldugum konungi!

Þó óvinaþjóðirnar ráðist gegn mér, allar sem ein, þá mun ég ganga fram undir gunnfána hans og gjöreyða þeim. Já, þær umkringja mig og gera árás, en ég útrými þeim undir sigurmerki hans. Þær þyrpast að mér eins og flugnager, blossa gegn mér sem eyðandi eldur. En undir fána hans gjörsigra ég þá!

Þú, óvinur minn, gerðir allt til að útrýma mér, en Drottinn kom mér til hjálpar. Þegar orustan stóð sem hæst var hann styrkur minn og lofsöngur og að endingu veitti hann mér sigur.

Á heimilum réttlátra syngja menn fagnaðarljóð, enda nýkomnar fréttir af sigri! Ekki mun ég deyja, heldur lifa og segja öllum frá máttarverkum hans. Rom 6:9Drottinn refsaði mér, en ofurseldi mig ekki dauðanum.

Ljúkið upp hliðum musterisins – ég ætla að ganga inn og þakka Drottni. Heb 9:24Um þessi hlið liggur leiðin til Drottins og réttlátir ganga þar inn. Ó, Drottinn, þökk sé þér að þú bænheyrðir og bjargaðir mér.

Steinninn sem smiðirnir höfðu hafnað var gerður að hornsteini hússins! Mat 21:42; Mrk 12:10Það var að vilja og fyrir tilstilli Drottins og er í einu orði sagt stórkostlegt! Þetta er dagurinn sem Drottinn hefur gert. Fögnum og verum glöð í dag! Ó, Drottinn, hjálpa þú. Frelsa þú okkur. Láttu okkur ná árangri. Blessaður sé sá sem er að koma, sá sem sendur er af Drottni. Við blessum þig frá helgidóminum.Mat 21:9; Mrk 11:9; Luk 19:38

Drottinn er ljósið sem lýsir okkur. Dansið fyrir honum, já, alla leiðina að altari hans. Hann er minn Guð, ég þakka honum og lofa hann. Þakkið Drottni, því að hann er góður! Miskunn hans varir að eilífu!Psa 136:1