OLO„Hér er enn ein dæmisaga um himnaríki: Landeigandi nokkur fór að heiman snemma morguns að fá verkamenn til uppskerustarfa.
20:2
OLOHann samdi við þá um venjuleg daglaun og að því búnu hófu þeir vinnuna.
20:3
OLOTveim stundum síðar gekk hann aftur niður í bæinn og sá þá menn á torginu iðjulausa.
20:4
OLOÞessa menn sendi hann einnig út á akurinn og sagðist mundu borga þeim sanngjörn laun.
20:5
OLOHann fór einnig út um hádegið og klukkan þrjú, og sama sagan endurtók sig.
20:6
OLOKlukkan fimm síðdegis var hann aftur staddur í bænum og sá þá enn nokkra sem höfðu ekkert fyrir stafni. „Af hverju eruð þið iðjulausir?“ spurði hann.
20:7
OLO„Við höfum ekki fengið neina vinnu,“ svöruðu þeir. „Farið þá og hjálpið hinum sem eru að vinna á ökrum mínum,“ sagði hann.
20:8
OLOUm kvöldið bauð hann gjaldkera sínum að kalla á mennina og greiða þeim launin og byrja á þeim sem komu síðastir.
OLOÞegar hinir, sem byrjað höfðu fyrr um daginn, komu að ná í sín laun, bjuggust þeir við að fá miklu meira, en þeir fengu sömu upphæð.
20:11
OLO[20:11–12]Þá mótmæltu þeir og sögðu: „Þessir náungar unnu aðeins eina klukkustund, en samt hefur þú greitt þeim jafnmikið og okkur sem höfum stritað allan daginn í þessum hita.“
20:12
OLO
20:13
OLO„Kæri vinur, ég hef ekki beitt þig rangindum!“ sagði maðurinn við einn þeirra. „Þú samþykktir að vinna allan daginn fyrir venjuleg daglaun, var ekki svo?
20:14
OLOTaktu þetta og síðan máttu fara. Mig langar til að borga þessum síðustu jafnmikið og þér.
20:15
OLOMá ég ekki gefa peningana mína þeim sem ég vil? Er það samningsbrot? Eða ertu öfundsjúkur af því að ég er góðsamur?“
20:16
OLOHinir fyrstu verða oft síðastir og þeir síðustu fyrstir.“
20:17
OLOÁ leiðinni til Jerúsalem tók Jesús lærisveinana tólf afsíðis,
20:18
OLOtil þess að segja þeim hvað biði hans er hann kæmi til borgarinnar.
20:19
OLO„Ég verð svikinn í hendur æðstu prestanna og leiðtoganna, og þeir munu dæma mig til dauða. Síðan munu þeir afhenda mig rómversku yfirvöldunum. Ég verð hæddur og krossfestur, en á þriðja degi mun ég rísa upp frá dauðum.“
20:20
OLOMóðir þeirra Jakobs og Jóhannesar Sebedeussona kom þá með þeim til Jesú, hneigði sig og bað hann að gera sér greiða.
20:21
OLO„Hvað vilt þú?“ spurði hann. Hún svaraði: „Viltu leyfa þessum sonum mínum að sitja sínum hvorum megin við þig þegar þú sest í hásæti þitt?“
20:22
OLO„Þú veist ekki um hvað þú biður“ svaraði Jesús, sneri sér að Jakobi og Jóhannesi og spurði: „Getið þið drukkið þann beiska bikar sem ég tæmi innan skamms?“ „Já, það getum við!“ svöruðu þeir.
20:23
OLO„Þið fáið sannarlega að drekka hann,“ sagði Jesús. „En það er ekki mitt að segja hverjir eiga að sitja mér við hlið, það er föður míns að ákveða.“
20:24
OLOÞegar hinir tíu heyrðu hvað Jakob og Jóhannes höfðu beðið um, urðu þeir gramir.
20:25
OLOJesús kallaði þá til sín og sagði: „Konungar þjóðanna eru harðstjórar og embættismenn þeirra láta fólkið kenna á valdi sínu.
20:26
OLOÞessu er öfugt farið um ykkur. Sá ykkar sem vill verða leiðtogi, verður að þjóna hinum,
20:27
OLOog sá sem vill verða fremstur, verður að þjóna eins og þræll.
20:28
OLOVerið eins og ég, Kristur, sem kom ekki til að láta þjóna mér heldur til að þjóna öðrum og gefa líf mitt til lausnar fyrir marga.“
20:29
OLOÞegar Jesús og lærisveinarnir fóru frá Jeríkó fylgdi þeim mikill mannfjöldi.
20:30
OLOVið veginn út úr bænum sátu tveir blindir menn. Þegar þeir heyrðu að Jesú ætti leið þar um fóru þeir að hrópa og kalla: „Herra, sonur Davíðs konungs, hjálpaðu okkur!“
20:31
OLOMannfjöldinn skipaði þeim að þegja, en þá hrópuðu þeir enn hærra.
20:32
OLO[20:32–33]Jesús nam staðar og kallaði til þeirra: „Hvað viljið þið að ég geri fyrir ykkur?“ „Herra,“ hrópuðu þeir, „gef okkur sjónina!“
20:33
OLO
20:34
OLOJesús kenndi í brjósti um þá og snerti augu þeirra. Við það fengu þeir jafnskjótt sjónina og fylgdu honum.
As suas traduções são o conjunto da última comparação que abriu com «Comparar» ou que lembrou; enquanto não houver conjunto, a primeira comparação aberta diretamente — a partir de um marcador ou de um link externo ao site — passa a sê-lo. Quando o conjunto tem pelo menos duas traduções e todas têm a passagem, a comparação abre sem o formulário de escolha.
Marque com uma estrela as traduções que deseja ter nos favoritos.
Fonte
Tamanho do texto
No princípio era o Verbo, e o Verbo estava com Deus, e o Verbo era Deus
Os reprodutores aparecem sem clique e não iniciam sozinhos; uma página com vídeo entra em contato com o youtube.com imediatamente. Enquanto esta opção estiver ativada, os vídeos são carregados do YouTube.
Carregar vídeos de
Se o YouTube não responder, o vídeo será carregado do servidor do site quando houver uma cópia lá.
Redefinir configurações
Todas as configurações serão redefinidas para os valores padrão. Tem certeza?