PsaПс SálmarnirПсалтирь, sálmurпсалом SálmarnirПсалтирь, sálmurпсалом 116

Переводы

Ég elska Drottin, því að hann heyrir bænir mínar – og svarar þeim. Meðan ég dreg andann mun ég biðja til hans, því að hann lítur niður og hlustar á mig.Psa 31:2

Ég horfðist í augu við dauðann – var hræddur og hnípinn. Þá hvíslaði ég: „Drottinn, frelsaðu mig!“ Náðugur er Drottinn og góður er hann! Psa 86:5Drottinn hlífir vondaufum og styrkir hjálparvana. Mat 10:16Nú get ég slakað á og verið rór, því að Drottinn hefur gert mikla hluti fyrir mig. Hann hefur bjargað mér frá dauða, augum mínum frá gráti og fótum mínum frá hrösun. Psa 56:13-14Ég fæ að lifa! Já, lifa með honum hér á jörðu!

Þegar ég átti erfitt hugsaði ég: Þeir segja ósatt, að allt muni snúast mér í hag. 2Co 4:13; Rom 3:4En nú, hvernig get ég nú endurgoldið Drottni góðverk hans við mig? Ég vil lyfta bikarnum og vínberjalegi að fórn, þakka honum lífið. Psa 23:5Fórnina sem ég lofaði Drottni, færi ég nú í allra augsýn. Psa 22:25Hann elskar vini sína og lætur þá ekki deyja án gildrar ástæðu.

Drottinn, þú hefur leyst fjötra mína, því vil ég þjóna þér af öllu hjarta. Ég vil lofa þig og færa þér þakkarfórn. Psa 50:14; Heb 13:15 Í forgörðum musteris Drottins í Jerúsalem vil ég – og það í augsýn allra – færa honum allt sem ég hafði lofað. Dýrð sé Drottni!