PsaПс SálmarnirПсалтирь, sálmurпсалом SálmarnirПсалтирь, sálmurпсалом 147

Переводы Сравнить

Hallelúja! Já, lofið Drottin! Það er gott að lofa Drottin! Indælt og rétt!Psa 92:1

Hann er að endurreisa Jerúsalem og flytja hina herleiddu heim. Psa 51:20Hann reisir upp hina niðurbeygðu og bindur um sár þeirra.

Hann þekkir fjölda stjarnanna, já og hverja fyrir sig með nafni! Mikill er Drottinn! Vald hans er stórkostlegt! Þekking hans er takmarkalaus. Psa 145:3Drottinn styður auðmjúka, en varpar illmennum til jarðar. Psa 146:8Syngið honum þakkarljóð, lofið Guð með hörpuleik. Hann fyllir himininn skýjum, gefur steypiregn og klæðir fjöllin grænu grasi. Act 14:17Hann fæðir hin villtu dýr og hrafnarnir krunka til hans eftir æti. Psa 104:14; Mat 6:26Í hans augum kemst sprettharður foli varla úr sporunum og máttur mannsins má sín lítils. En hann gleðst yfir þeim sem elska hann og reiða sig á kærleika hans og gæsku.Act 10:35

Lofa þú hann, Jerúsalem! Vegsama Guð þinn, Síon! Því að hann hefur gert múra þína öfluga og blessað börnin þín. Hann lætur frið haldast í landinu og fyllir hlöður þínar af úrvals hveiti. Hann sendir boð sín til jarðar, skipanir hans berast hratt eins og vindurinn. Skjannahvít mjöllin er frá honum komin og hrímið sem glitrar á jörðinni. Haglélið er líka hans verk og frostið sem bítur í kinnarnar. En síðan sendir hann hlýjan vorvind, snjórinn þiðnar og árnar ryðja sig. Psa 33:9Hann kunngjörði Ísrael lögmál sitt og ákvæði Act 13:17– það hefur hann ekki gert við neina aðra þjóð, nei, þeim kennir hann ekki fyrirmæli sín.

Hallelúja! Dýrð sé Drottni!Rom 2:3