PsaПс SálmarnirПсалтирь, sálmurпсалом SálmarnirПсалтирь, sálmurпсалом 28

Переводы Сравнить

Ég hrópa til þín um hjálp, Drottinn, því að þú ert klettur hjálpræðis míns. Ef þú hjálpaðir ekki væri úti um mig. Framundan væri ekkert nema dauðinn. Psa 143:7Drottinn, ég lyfti höndum til himins og ákalla þig um hjálp. Ó, heyr þú grátbeiðni mína!Psa 4:1

Drottinn, refsaðu mér ekki ásamt illgjörðamönnunum, þeim sem sitja á svikráðum við nágranna sína. Psa 12:2Refsaðu þeim eins og rétt er. Illvirki þeirra eiga skilið réttlátan dóm. Mat 16:27Þeir hugsa ekkert um Guð, sköpun hans og verk. Þess vegna mun Guð ryðja þeim úr vegi, rífa þá eins og ónýtt hús sem ekki verður endurreist.

Lofaður sé Drottinn! Hann heyrði grátbeiðni mína! Hann er styrkur minn, skjól mitt gegn öllum árásum. Honum treysti ég og hann hjálpaði mér. Gleðin svellur í brjósti mér og brýst út í lofgjörð til hans! Psa 3:3Drottinn verndar sitt fólk og veitir konungi sínum sigur.Psa 27:1

Stattu vörð um þjóð þína, Drottinn! Vernda og blessa þitt útvalda fólk. Eins og fjárhirðir leiðir sauði sína, þá leið og vernda þjóð þína að eilífu.