Psa SálmarnirMga Salmo, sálmursalmo SálmarnirMga Salmo, sálmursalmo 86

Mga salin Ihambing

Drottinn, líttu til mín! Hlustaðu á bæn mína! Svaraðu mér því að ég er í nauðum staddur.Psa 88:2

Bjargaðu mér frá dauða, því að ég tilheyri þér. Frelsaðu mig, því að ég treysti þér og hlýði. Miskunna mér, Drottinn. Ég mæni til þín og vona á þig liðlangan daginn. Drottinn, leyfðu mér að gleðjast því að ég tilbið þig einan. Drottinn, þú ert mildur og góður og fús að fyrirgefa, gæskuríkur við alla sem ákalla þig.

Heyr þú bæn mína Drottinn, því að ég ákalla þig í neyð minni. Þegar ég er í vanda staddur hrópa ég til þín því að þú hjálpar mér.Psa 50:15

Enginn hinna heiðnu guða stenst samjöfnuð við þig! Þín verk eru engu lík! Þjóðirnar – þú skapaðir þær allar – munu koma og lúta þér. Þær munu lofa þitt háa og heilaga nafn Rev 15:5því að þú ert mikill og gerir furðuverk. Þú einn ert Guð!

Sýndu mér, Drottinn, hvert þú vilt senda mig og þangað mun ég fara, því það er vegur sannleikans. Ó, að ég gæti tignað þig af heilu hjarta og hreinni samvisku! Psa 25:4; Psa 27:11Ég lofa þig Drottinn Guð minn af öllu hjarta. Ég vil vegsama nafn þitt að eilífu. Mikill er kærleikur þinn! Þú ert mér alltaf svo góður! Þú frelsaðir mig úr djúpi heljar.Psa 30:3

Ofstopamenn rísa gegn mér. Guðlaus illmenni vilja ryðja mér burt. Psa 54:5En þú, Drottinn, ert miskunnsamur Guð, seinn til reiði, langlyndur og trúr. Psa 86:5Líttu til mín í náð og styrktu mig. Ég er þjónn þinn, frelsaðu mig. Gefðu mér tákn um að þú elskir mig. Þegar óvinir mínir sjá það, munu þeir blygðast sín því að þú hjálpar mér og huggar mig.