Juan 21 sa iba't ibang salin

Piliin ang mga salin na paghahambingin

Pumili ng salin para idagdag ito sa listahan; sinusunod ng mga hanay ang pagkakasunod-sunod ng listahan.

  1. Lifandi Orð

Íslenska

Tagalog

Русский

Čeština

Беларуская

English

Українська

Deutsch

Polski

Español

Português

Türkçe

中文

Français

Italiano

Ἀρχαία Ἑλληνική

Српски / Srpski

Hrvatski

Eesti

Svenska

Magyar

Slovenčina

Suomi

Norsk bokmål

Cebuano

Hiligaynon

Nederlands

Български

Tiếng Việt

Bahasa Indonesia

ไทย

한국어

हिन्दी

English

  • JPS Tanakh
  • Targum Onkelos (Etheridge)
Lifandi Orð
21:1
OLO Seinna birtist Jesús lærisveinunum á ný og þá við Galíleuvatnið. Það gerðist á þennan hátt:
21:2
OLO Nokkrir okkar voru þar, Símon Pétur, Tómas, „tvíburinn“, Natanael frá Kana í Galíleu, Jakob bróðir minn og ég, og tveir aðrir lærisveinar.
21:3
OLO „Ég ætla út að fiska,“ sagði Símon Pétur. „Við komum með þér,“ sögðum við hinir. Við fórum en urðum ekki varir alla nóttina.
21:4
OLO Við sólarupprás sáum við mann standa á ströndinni en við þekktum hann ekki.
21:5
OLO Hann kallaði til okkar og sagði: „Hafið þið fengið nokkuð, drengir?“ „Nei,“ svöruðum við.
21:6
OLO „Kastið þá netinu hægra megin við bátinn og þá munuð þið fáʼann!“ kallaði hann. Þetta gerðum við og þá fylltist netið af fiski og var mergðin slík að við gátum ekki innbyrt það.
21:7
OLO Þá sagði ég við Pétur: „Þetta er Drottinn!“ Þá snaraði Pétur sér úr treyjunni, stökk út í og synti að landi.
21:8
OLO Við hinir vorum kyrrir í bátnum og drógum netið, sem var alveg fullt, á eftir okkur þennan spöl, sem við áttum ófarinn í land.
21:9
OLO Þegar þangað kom, sáum við að þar hafði verið kveiktur eldur. Einnig var þar steiktur fiskur og brauð.
21:10
OLO „Komið hingað með nokkra af fiskunum, sem þið veidduð,“ sagði Jesús.
21:11
OLO Símon Pétur fór þá og dró netið á land og taldi úr því 153 stóra fiska. En þótt fjöldinn væri slíkur, hafði netið ekki rifnað.
21:12
OLO „Komið, við skulum fá okkur að borða,“ sagði Jesús. Enginn okkar þorði að spyrja hann, hvort hann væri Drottinn í raun og veru, við vorum reyndar vissir um að svo væri.
21:13
OLO Og hann skipti á milli okkar fiskunum og brauðinu.
21:14
OLO Þetta var í þriðja sinn sem Jesús birtist okkur eftir upprisuna.
21:15
OLO Að morgunverðinum loknum, sagði Jesús við Símon Pétur: „Símon Jónasson, elskar þú mig meira en þeir hinir?“ „Já,“ svaraði Pétur, „þú veist að ég elska þig.“ Þá sagði Jesús við hann: „Gættu lamba minna.“
21:16
OLO Jesús endurtók spurninguna og sagði: „Símon Jónasson, elskar þú mig í raun og veru?“ „Já, Drottinn,“ svaraði Pétur, „þú veist að ég elska þig.“ „Annastu sauði mína,“ sagði Jesús.
21:17
OLO Og í þriðja sinn spurði Jesús hann: „Símon Jónasson, ert þú sannur vinur minn?“ Pétur varð hryggur þegar hann heyrði Jesú spyrja þess sama í þriðja sinn og svaraði: „Drottinn, þú þekkir hjarta mitt og veist að ég elska þig.“ „Gæt þú sauða minna,“ svaraði Jesús.
21:18
OLO Síðan bætti hann við og sagði: „Þegar þú varst ungur, gerðirðu það sem þig langaði til og fórst hvert sem þú vildir. En þegar þú eldist muntu verða að rétta út hendur þínar og aðrir munu taka þig með valdi og fara með þig þangað sem þú vilt ekki.“
21:19
OLO Þetta sagði Jesús til að láta hann vita með hvaða hætti hann mundi deyja og vegsama Guð. Síðan sagði Jesús við hann: „Fylgdu mér!“
21:20
OLO Pétur sneri sér þá við og sá mig, lærisveininn sem Jesús elskaði, koma á eftir sér, en það var ég sem hafði hallað mér upp að Jesú við kvöldmáltíðarborðið og spurt: „Meistari, hver af okkur mun svíkja þig?“
21:21
OLO Pétur spurði því Jesú: „Hvað með hann, Drottinn? Hvernig mun hann deyja?“
21:22
OLO Jesús svaraði: „Hvað varðar þig um það, ef ég vil að hann lifi þangað til ég kem aftur? En þú skalt fylgja mér.“
21:23
OLO Þetta varð til þess að sá orðrómur barst út meðal bræðranna að þessi lærisveinn mundi ekki deyja, en það hafði Jesús ekki sagt. Hann sagði aðeins: „Hvað varðar þig um það, ef ég vil að hann lifi þangað til ég kem aftur?“
21:24
OLO Ég er þessi lærisveinn! Ég sá þessa atburði gerast og hef ritað um þá hér. Við vitum að frásögn mín er sönn.
21:25
OLO Ég býst við að heimurinn mundi varla rúma allar þær bækur sem til yrðu, ef skrifa ætti allt sem gerðist í lífi Jesú.