OLOÞegar birti að morgni sunnudagsins fóru María Magdalena og María hin út til að líta eftir gröfinni.
28:2
OLOSkyndilega varð mikill jarðskjálfti! Engill Drottins kom niður af himni, velti steininum frá grafardyrunum og settist á hann.
28:3
OLOAndlit engilsins lýsti sem elding og klæði hans voru skínandi björt.
28:4
OLOÞegar verðirnir sáu hann skulfu þeir af hræðslu og féllu í yfirlið.
28:5
OLOEngillinn sagði þá við konurnar: „Verið óhræddar! Ég veit að þið leitið að Jesú hinum krossfesta,
28:6
OLOen hann er ekki hér. Hann er upprisinn eins og hann sagði. Komið og sjáið hvar líkami hans lá.
28:7
OLOEn flýtið ykkur nú og segið lærisveinunum að hann sé risinn upp frá dauðum og að hann fari á undan þeim til Galíleu, til að hitta þá þar. Þessu átti ég að skila til ykkar.“
28:8
OLOKonurnar urðu óttaslegnar en þó glaðar og þær flýttu sér frá gröfinni til að flytja lærisveinunum skilaboð engilsins.
28:9
OLOEn skyndilega mættu þær Jesú og hann heilsaði þeim! Þær féllu til jarðar frammi fyrir honum, gripu um fætur hans og tilbáðu hann.
28:10
OLO„Verið óhræddar!“ sagði hann, „farið og segið bræðrum mínum að halda þegar til Galíleu og þar munu þeir sjá mig.“
28:11
OLOMeðan konurnar voru á leið inn í borgina fóru sumir varðmannanna, sem gætt höfðu grafarinnar, til æðstu prestanna og sögðu þeim hvað gerst hafði.
28:12
OLO[28:12–13]Allir leiðtogar Gyðinga voru kallaðir saman til fundar. Þar var ákveðið að múta vörðunum til að segja að þeir hefðu sofnað, og um miðja nótt hefðu svo lærisveinar Jesú komið og stolið líkinu.
28:13
OLO
28:14
OLO„Þið þurfið engu að kvíða,“ sögðu leiðtogarnir. „Ef landstjórinn fréttir þetta tölum við máli ykkar við hann og friðum hann.“
28:15
OLOVerðirnir tóku þá við mútufénu og gerðu eins og þeim hafði vefið sagt. Frásaga þeirra barst út á meðal Gyðinga og er henni jafnvel trúað enn í dag.
28:16
OLOEftir þetta fóru lærisveinarnir ellefu til Galíleu, til fjallsins þar sem Jesús sagðist mundu hitta þá.
28:17
OLOÞegar þeir sáu hann þar, tilbáðu þeir hann – þó sumir væru ekki vissir um að þetta væri sjálfur Jesús.
28:18
OLOSíðan ávarpaði hann lærisveinana og sagði: „Allt vald er mér gefið á himni og jörðu.
28:19
OLOFarið því og gerið allar þjóðir að mínum lærisveinum.
28:20
OLOSkírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda, og kennið þeim að halda allt það sem ég hef boðið ykkur. Takið eftir! Ég er með ykkur alla daga allt til enda veraldarinnar.“
Mga salita ni Kristo:Ganito kamahal ng Diyos ang sanlibutan
Ang iyong mga salin ay ang set ng huling paghahambing na binuksan mo gamit ang “Ihambing” o tinandaan; habang wala pang set, ang unang paghahambing na direktang binuksan — mula sa bookmark o sa link mula sa labas ng site — ang magiging set. Kapag ang set ay may hindi bababa sa dalawang salin at nasa lahat ng mga iyon ang bahaging ito, bubukas ang paghahambing nang walang form sa pagpili.
Lagyan ng bituin ang mga salin na gusto mong nasa mga paborito.
Font
Laki ng teksto
Nang pasimula, naroon na ang Salita. Ang Salita ay kasama ng Diyos at ang Salita ay Diyos
Lumalabas ang mga player nang walang pag-click at hindi nagsisimula nang kusa; ang pahinang may video ay agad na nakikipag-ugnayan sa youtube.com. Habang naka-on ang setting na ito, nilo-load ang mga video mula sa YouTube.
I-load ang mga video mula sa
Kapag hindi tumutugon ang YouTube, ilo-load ang video mula sa server ng site kung may kopya roon.
I-reset ang mga setting
Ibabalik namin sa default ang lahat ng setting. Sigurado ba kayo?