MatМт MatteusМатвія, kafliрозділ MatteusarguðspjallЄвангеліє від св. Матвія, kafliрозділ 22

Переклади

Dæmisagan um brúðkaupið

Jesús sagði fólkinu fleiri sögur til þess að auka skilning þess á mætti og valdi Guðs. Hér er ein þeirra:

„Guðsríki má líkja við konung sem undirbjó brúðkaupsveislu sonar síns. Luk 14:16; Rev 19:7Fjöldi gesta var boðinn, og þegar stundin nálgaðist sendi hann þjóna sína til þess að segja öllum að veislan væri að hefjast. En fólkið vildi ekki koma! Hann sendi því aðra með þessi skilaboð: „Allt er tilbúið. Steikin er í ofninum. Flýtið ykkur!“ En þeir sem boðnir voru hlógu aðeins og sneru sér að vinnu sinni, eins og ekkert hefði í skorist. Einn að búskapnum, annar að versluninni, enn aðrir börðu sendiboðana, svívirtu þá og drápu suma þeirra. Þá reiddist konungurinn heiftarlega og sendi þangað herlið, drap morðingjana og brenndi borg þeirra. Luk 19:27Síðan sagði hann við þjóna sína: „Brúðkaupsveislan skal haldin, en gestirnir, sem boðnir voru, eru ekki verðir þessa heiðurs. Farið nú út á göturnar og bjóðið þeim sem þið sjáið að koma!“ Þjónarnir fóru og náðu í alla sem þeir gátu, bæði vonda og góða, og veislusalurinn varð fullur af brúðkaupsgestum. En þegar konungurinn kom inn til að heilsa gestunum, tók hann eftir manni sem ekki var í brúðkaupsklæðum (þeim sem gestunum hafði verið séð fyrir). „Heyrðu vinur,“ sagði konungurinn, „Hvernig stendur á því að þú ert ekki í brúðkaupsklæðum?“ Maðurinn svaraði engu. Þá sagði konungurinn við þjóna sína: „Bindið hann á höndum og fótum og kastið honum út í myrkrið – þar verður grátið og kveinað.“ Margir eru kallaðir en fáir útvaldir.“Mat 20:16

Hverjum á að greiða skatt?

Farísearnir sátu nú á fundi, til að ræða hvernig þeir gætu flækt Jesú í orðum, svo hægt væri að handtaka hann. Mrk 12:13; Luk 20:20Niðurstaðan varð sú að þeir ákváðu að senda lærisveina sína ásamt öðrum úr hópi Heródesarsinna til þess að leggja fyrir hann spurningar og segja:

„Herra við vitum að þú ert mjög heiðarlegur og segir sannleikann, hvað sem öðrum finnst. Segðu okkur nú, er rétt af okkur að greiða skatt til rómverska ríkisins, eða ekki?“ En Jesús skildi bragðið og kallaði:

„Þið hræsnarar! Eruð þið að reyna að leika á mig með lævísum spurningum? Sýnið mér mynt.“ Þá réttu þeir honum pening. „Af hverjum er myndin á peningnum,“ spurði hann, „og hvaða nafn er undir myndinni?“

„Keisarans,“ svöruðu þeir.

„Jæja,“ sagði hann. „Gjaldið þá keisaranum það sem keisarans er, og Guði það sem Guðs er.“ Mrk 12:17; Rom 13:7Þeir urðu orðlausir af undrun við þetta svar og fóru burt.

Um upprisuna

Þennan sama dag komu nokkrir saddúkear til hans, en þeir héldu því fram að upprisa dauðra ætti sér aldrei stað. Þeir spurðu: Mrk 12:18; Luk 20:27; Act 23:8„Herra, Móse segir að deyi maður barnlaus, eigi bróðir hans að kvænast ekkjunni og börn þeirra síðan að erfa eignir hins látna. Mrk 12:19; Luk 20:28Einu sinni voru sjö bræður. Sá fyrsti kvæntist en dó án þess að eignast börn. Konan giftist þá elsta bróðurnum, en sá bróðir dó einnig barnlaus, og þá giftist konan þeim sem næstur var í röðinni. Svona gekk þetta koll af kolli þangað til hún hafði verið gift þeim öllum, og að lokum dó hún einnig. Nú spyrjum við: Kona hvers þeirra verður hún í upprisunni, fyrst hún var gift þeim öllum?“ Jesús svaraði:

„Þið vaðið reyk, því þið þekkið hvorki Biblíuna né kraft Guðs. Í upprisunni verður ekkert hjónaband, því þá verða allir eins og englarnir á himnum. 1Co 15:44En hafið þið ekki lesið það sem Biblían segir um upprisu dauðra? Skiljið þið ekki að Guð talar til ykkar þegar hann segir: „Ég er Guð Abrahams, Ísaks og Jakobs.“ Guð er ekki Guð hinna dauðu heldur þeirra sem lifa.“ Mrk 12:26; Luk 20:37Mannfjöldanum þótti mikið til um svör Jesú en farísearnir voru ekki á sama máli.

Hvert er mikilvægasta boðorðið?

Þegar farísearnir fréttu að Jesús hefði gert saddúkeana orðlausa fitjuðu þeir upp á nýrri spurningu, og var lögfræðingur nokkur fenginn til að bera hana fram. Spurningin var þessi:Mrk 12:28; Luk 10:25

„Herra, hvert er mikilvægasta boðorðið í lögum Móse?“ Jesús svaraði:

„Elska skalt þú Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum. Mrk 12:30; Luk 10:27 Þetta er fyrsta og jafnframt æðsta boðorðið. Það næstæðsta er svipað, en það er þannig: „Elskaðu meðbróður þinn eins og sjálfan þig.“ Mat 5:43; Mrk 12:31Öll hin boðorðin og fyrirmæli spámannanna – já, öll Biblían – byggja á þessu tvöfalda boði. Ef þið hlýðið því, þá hlýðið þið öllum hinum um leið.“

Hvað sagði Davíð?

En nú spurði Jesús faríseana:

„Getið þið sagt mér hvers son Kristur er?“

„Sonur Davíðs,“ svöruðu þeir.Mrk 12:35; Luk 20:41

„Hvers vegna talar þá Davíð, knúinn af heilögum anda, um hann sem Drottin?“ spurði Jesús. „Var það ekki Davíð sem sagði:

„Guð sagði við minn Drottin: sittu mér til hægri handar uns ég hef lagt óvini þína að fótum þér.“Psa 110:1; Luk 20:42

Fyrst Davíð kallar hann „Drottin,“ hvernig getur hann þá verið sonur hans?“ Þessu gátu þeir ekki svarað og eftir það þorði enginn að spyrja hann neins.