Psa Sálmarnir, sálmur Sálmarnir, sálmur 38
Drottinn, ekki refsa mér, þótt þú sért reiður. Psa 6:1Örvar þínar standa í mér og hönd þín liggur þungt á mér. Vegna reiði þinnar er ég sjúkur maður, heilsa mín er farin vegna synda minna. Syndir mínar líkjast flóði sem færir mig í kaf, eins og byrði sem ég kikna undan. Psa 32:4 Ólykt leggur af sárum mínum – það er drep í þeim. Ég er ráðþrota vegna synda minna. Ég ráfa um í angist liðlangan daginn. Psa 42:9Lendar mínar brenna af sviða og líkami minn er helsjúkur. Máttur minn er þrotinn og ég er örvæntingu nær.
Drottinn, ég þrái bót á meini mínu! Þú heyrir kvein mín og andvörp. Hjartað hamast í brjósti mér, kraftar mínir búnir og sjónin dvín. Psa 31:11Ástvinir mínir og góðir grannar forðast sjúkdóm minn og böl og frændur mínir eru á bak og burt.
Óvinir mínir sæta færis að drepa mig. Liðlangan daginn sitja þeir á svikráðum, brugga mér banaráð. Mat 27:12; Act 8:32 En illráð þeirra verka ekki á mig! Ég virði þá ekki viðlits. Áform þeirra rætast ekki, því að ég vona á þig, Drottinn, Guð minn. Kom þú og vernda mig. Þaggaðu niður í þeim sem hlæja að óförum mínum.
Ég er að falli kominn og angist mín er enn hin sama. Psa 32:5; 2Co 7:10Ég játa syndir mínar og iðrast þess sem ég hef gert. En ofsóknum óvina minna linnir ekki og heift þeirra minnkar ekki. Þeir hata mig án ástæðu. Psa 109:5Þeir launa mér gott með illu, hata mig fyrir góðverk mín.
Yfirgefðu mig ekki, Drottinn. Vík ekki frá mér! Komdu skjótt og hjálpaðu mér, þú frelsari minn!