OLO[40:1–2]Ég setti alla mína von á Drottin. Hann heyrði kvein mitt og að lokum bjargaði hann mér.
40:2
OLO
40:3
OLOHann dró mig upp úr glötunargröfinni, hinni botnlausu leðju, og lyfti mér upp á klett. Hann gerði mig styrkan í gangi.
40:4
OLOÞá fylltist munnur minn lofsöng – lofgjörð um Guð. Margir hlustuðu er ég söng um velgjörðir hans við mig. Þeir munu einnig lúta honum og lofa hann, setja traust sitt á hann.
40:5
OLOÞeir sem treysta Drottni verða lánsamir, þeir sem forðast ráð dramblátra og halda sér frá lygi.
40:6
OLODrottinn, Guð minn, mörg dásemdarverk hefur þú gert og mikillar umhyggju höfum við notið. Ekkert kemst í samjöfnuð við þig! Mér endist ekki tími til að rifja upp öll þín undraverk!
40:7
OLOSláturfórnir og matfórnir þráir þú ekki frá lýð þínum, og brennifórnir heimtar þú ekki. Nei, þú þráir að ég þjóni þér alla ævi.
40:8
OLOÉg sagði: „Sjá, ég kem, rétt eins og orð þitt býður mér.
40:9
OLOÞað að gera vilja þinn, Drottinn minn, þrái ég því að lögmál þitt er ritað á hjarta mitt!“
40:10
OLOÉg hef vitnað um það fyrir öllum, aftur og aftur, að þú fyrirgefur syndir. Það veistu Drottinn.
40:11
OLOÉg hef ekki þagað yfir réttlæti þínu heldur boðað það öllum. Allur söfnuðurinn hefur heyrt mig tala um elsku þína og trúfesti.
40:12
OLOÞess vegna, Drottinn minn, taktu ekki miskunn þína frá mér! Ég á allt mitt undir kærleika þínum og náð.
40:13
OLOSért þú ekki með mér, er úti um mig. Vandamál mín eru mér ofvaxin, og syndir mínar – sem eru fleiri en hárin á höfði mér – hafa lamað mig. Ég veit ekki mitt rjúkandi ráð.
40:14
OLOÓ, Drottinn, ég hrópa til þín! Frelsa þú mig! Komdu fljótt og hjálpaðu mér.
40:15
OLO[40:15–16]Ruglaðu þá í ríminu; sem sækjast eftir lífi mínu. Sendu þá burt með skömm!
40:16
OLO
40:17
OLO[40:17–18]17Allir þeir sem elska Drottin og leita hans, skulu gleðjast yfir hjálpræði hans. Þeir segi án afláts: „Mikill er Drottinn!“ 18Ég er aumur og fátækur, en þó ber Drottinn umhyggju fyrir mér. Þú, Guð minn, ert hjálp mín, og frelsari; Ó, komdu og bjargaðu mér! Láttu það ekki dragast!.
Ваші переклади — набір останнього порівняння, яке ви відкрили кнопкою «Порівняти» або запам’ятали; поки набору немає, ним стає перше порівняння, відкрите напряму — із закладки або за посиланням ззовні. Коли в наборі не менше двох перекладів і всі вони мають це місце, порівняння відкривається без форми вибору.
Позначте зірочкою переклади, які хочете бачити в обраному.
Шрифт
Розмір тексту
Споконвіку було Слово, а Слово в Бога було, і Бог було Слово
Плеєри з’являються без кліку й самі не вмикаються; сторінка з відео одразу звертається до youtube.com. Поки налаштування ввімкнене, відео завантажується з YouTube.
Звідки завантажувати відео
Якщо YouTube не відповідає, відео завантажиться із сервера сайту, коли там є копія.
Скидання налаштувань
Ми скинемо всі налаштування до типових значень. Ви впевнені?