Ψαλμοί 40 σε διαφορετικές μεταφράσεις

Επιλέξτε μεταφράσεις για σύγκριση

Επιλέξτε μια μετάφραση για να προστεθεί στη λίστα· οι στήλες ακολουθούν τη σειρά της λίστας.

  1. Lifandi Orð

Íslenska

Русский

Čeština

Беларуская

English

Українська

Deutsch

Polski

Español

Português

Türkçe

中文

Français

Italiano

Српски / Srpski

Hrvatski

Svenska

Magyar

Tagalog

Cebuano

Hiligaynon

Nederlands

Tiếng Việt

ไทย

한국어

हिन्दी

Русский

  • Десницкий
  • Кассиан

English

  • African International (Paraphrase, American)
  • African International (Paraphrase, British)
  • African International (Literal, American)
  • African International (Literal, British)
  • Majority Text
  • Targum Onkelos (Etheridge)
  • Text-Critical English

Deutsch

  • Byzantinischer Text

Polski

  • Słowo Życia

Español

  • Biblia Libre (Nuevo Testamento)

Português

  • Tradução para Tradutores

Türkçe

  • Temel Tercüme

中文

  • 易读圣经

Ἀρχαία Ἑλληνική

  • Textus Receptus
  • Patriarchal 1904
  • Solid Rock
  • Family 35
  • Text-Critical Greek

Hrvatski

  • Knjiga o Kristu

Čeština

  • Slovo na cestu

Eesti

  • Kaasaegne eesti

Magyar

  • Élet, igazság és világosság

Slovenčina

  • Nádej pre každého

Suomi

  • Elävä uutinen

Norsk bokmål

  • En Levende Bok

Nederlands

  • Gods Boek

Български

  • Съвременен

Bahasa Indonesia

  • Mudah Dibaca
Lifandi Orð
40:1
OLO [40:1–2] Ég setti alla mína von á Drottin. Hann heyrði kvein mitt og að lokum bjargaði hann mér.
40:2
OLO
40:3
OLO Hann dró mig upp úr glötunargröfinni, hinni botnlausu leðju, og lyfti mér upp á klett. Hann gerði mig styrkan í gangi.
40:4
OLO Þá fylltist munnur minn lofsöng – lofgjörð um Guð. Margir hlustuðu er ég söng um velgjörðir hans við mig. Þeir munu einnig lúta honum og lofa hann, setja traust sitt á hann.
40:5
OLO Þeir sem treysta Drottni verða lánsamir, þeir sem forðast ráð dramblátra og halda sér frá lygi.
40:6
OLO Drottinn, Guð minn, mörg dásemdarverk hefur þú gert og mikillar umhyggju höfum við notið. Ekkert kemst í samjöfnuð við þig! Mér endist ekki tími til að rifja upp öll þín undraverk!
40:7
OLO Sláturfórnir og matfórnir þráir þú ekki frá lýð þínum, og brennifórnir heimtar þú ekki. Nei, þú þráir að ég þjóni þér alla ævi.
40:8
OLO Ég sagði: „Sjá, ég kem, rétt eins og orð þitt býður mér.
40:9
OLO Það að gera vilja þinn, Drottinn minn, þrái ég því að lögmál þitt er ritað á hjarta mitt!“
40:10
OLO Ég hef vitnað um það fyrir öllum, aftur og aftur, að þú fyrirgefur syndir. Það veistu Drottinn.
40:11
OLO Ég hef ekki þagað yfir réttlæti þínu heldur boðað það öllum. Allur söfnuðurinn hefur heyrt mig tala um elsku þína og trúfesti.
40:12
OLO Þess vegna, Drottinn minn, taktu ekki miskunn þína frá mér! Ég á allt mitt undir kærleika þínum og náð.
40:13
OLO Sért þú ekki með mér, er úti um mig. Vandamál mín eru mér ofvaxin, og syndir mínar – sem eru fleiri en hárin á höfði mér – hafa lamað mig. Ég veit ekki mitt rjúkandi ráð.
40:14
OLO Ó, Drottinn, ég hrópa til þín! Frelsa þú mig! Komdu fljótt og hjálpaðu mér.
40:15
OLO [40:15–16] Ruglaðu þá í ríminu; sem sækjast eftir lífi mínu. Sendu þá burt með skömm!
40:16
OLO
40:17
OLO [40:17–18] 17Allir þeir sem elska Drottin og leita hans, skulu gleðjast yfir hjálpræði hans. Þeir segi án afláts: „Mikill er Drottinn!“ 18Ég er aumur og fátækur, en þó ber Drottinn umhyggju fyrir mér. Þú, Guð minn, ert hjálp mín, og frelsari; Ó, komdu og bjargaðu mér! Láttu það ekki dragast!.
40:18
OLO