OLOInnan skamms kemur kristin kona, að nafni Föbe, í heimsókn til ykkar. Hún hefur lagt mikið á sig fyrir söfnuðinn í Kenkreu og nú bið ég ykkur að taka vel á móti henni, eins og hæfir systur í Drottni.
16:2
OLOVeitið henni alla þá aðstoð sem ykkur er unnt, því að mörgum hefur hún hjálpað og þar á meðal mér.
16:3
OLOBerið Prisku og Akvílasi kveðju mína. Þau hafa starfað með mér við verk Jesú Krists.
16:4
OLOÞau hættu lífi sínu mín vegna og ég er ekki sá eini sem stend í þakkarskuld við þau, það gera allir söfnuðirnir meðal heiðingjanna.
16:5
OLOGjörið svo vel að flytja einnig kveðjur mínar þeim sem koma saman til guðsþjónustu á heimili þeirra. Ég bið að heilsa Epænetusi vini mínum. Hann var sá fyrsti sem tók kristna trú í Asíu.
16:6
OLOSkilið kveðju til Maríu, hún lagði á sig mikið erfiði til að geta hjálpað okkur.
16:7
OLOSkilið einnig kveðju til Andróníkusar og Júníasar, ættingja minna sem voru með mér í fangelsi. Þeir urðu kristnir á undan mér og postularnir virða þá mikils – ég bið kærlega að heilsa þeim.
16:8
OLOSkilið kveðju til Amplíatusar, en hann elska ég sem barn Guðs,
16:9
OLOog einnig til Urbanusar, samstarfsmanns okkar, og Stakkýss okkar elskaða vinar.
16:10
OLOApellesi, honum sendi ég kveðju mína en hann er góður maður og reyndur í Guði. Ég bið einnig kærlega að heilsa heimamönnum Aristóbúls.
16:11
OLOSkilið kveðju til Heródíons ættingja míns. Berið heimilisfólkinu hjá Narkissusi kveðju mína.
16:12
OLOSkilið kveðju til Trýfænu og Trýfósu, samverkamanna Drottins, og kæru Persis, sem lagt hefur mikið á sig fyrir Drottin.
16:13
OLOÉg bið að heilsa Rúfusi, sem Drottinn tók að sér, og móður hans, en hún var mér sem móðir.
16:14
OLOÉg bið einnig að heilsa Asýnkritusi, Flegon, Hermes, Patróbasi, Hermasi og bræðrunum sem með þeim eru.
16:15
OLOSkilið kærum kveðjum til Fílólógusar, Júlíu, Nerevs og systur hans, einnig til Ólympasar og allra hinna kristnu sem með þeim eru.
16:16
OLOHeilsið hvert öðru innilega. Allir söfnuðirnir hér um slóðir senda ykkur kveðju sína.
16:17
OLOEitt á ég eftir að segja ykkur áður en ég lýk þessu bréfi og það er: Forðist þá sem valda klofningi og sundurþykkju, þá sem fara með rangar kenningar um Krist.
16:18
OLOSlíkir kennarar starfa ekki fyrir Drottin Jesú, heldur skara þeir eld að eigin köku. Þessir menn eru mælskir og oft láta einfeldningar glepjast af því sem þeir segja.
16:19
OLOEn altalað er að þið séuð áreiðanleg og hlýðin og slíkt gleður mig mjög. Ég vil að þið haldið ykkur áfram að því sem rétt er og takið engan þátt í hinu illa.
16:20
OLOGuð friðarins mun brátt merja Satan undir fótum ykkar! Blessun Drottins Jesú Krists sé yfir ykkur.
16:21
OLOTímóteus, samstarfsmaður minn, Lúkíus, Jason og Sósípater, ættmenn mínir biðja kærlega að heilsa ykkur.
16:22
OLOÉg, Tertíus, sem hef skrifað þetta bréf fyrir Pál, sendi ykkur einnig vinarkveðju.
16:23
OLOGajus bað mig að skila kveðju til ykkar frá sér. Ég gisti hjá honum og söfnuðurinn kemur saman hér á heimili hans. Erastus, gjaldkeri borgarinnar, biður að heilsa, svo og Kvartus, en hann er bróðir í Kristi.
16:24
OLOVerið þið sæl. Náð Drottins Jesú Krists sé með ykkur öllum.
16:25
OLO[16:25–27]Ég fel ykkur Guði, honum sem megnar að styrkja ykkur og staðfesta í trúnni, eins og talað er um í gleðiboðskapnum sem ég flyt. Sá boðskapur er leiðin sem Guð hefur opnað öllum mönnum til hjálpræðis og sem öldum saman hefur legið í þagnargildi. En nú hefur það gerst samkvæmt skipun Guðs, eins og spámennirnir sögðu fyrir, að þessi boðskapur er fluttur meðal allra þjóða, svo að fólk um víða veröld trúi Kristi og hlýði honum. Guði, sem þekkir alla hluti, sé dýrð að eilífu fyrir Drottin Jesú Krist. Amen.
Các bản dịch của bạn là bộ bản dịch của lần so sánh gần nhất mà bạn mở bằng nút “So sánh” hoặc đã ghi nhớ; khi chưa có bộ nào, lần so sánh đầu tiên mở trực tiếp — từ dấu trang hoặc liên kết bên ngoài trang web — sẽ trở thành bộ đó. Khi bộ này có ít nhất hai bản dịch và tất cả đều có đoạn này, phần so sánh mở ra mà không qua biểu mẫu chọn.
Gắn sao cho các bản dịch bạn muốn giữ trong mục Yêu thích.
Phông chữ
Cỡ chữ
Ban đầu có Thiên Ngôn. Thiên Ngôn ở với Thượng Đế và Thiên Ngôn là Thượng Đế