Romanos 16 en diferentes traducciones

Elige las traducciones que quieres comparar

Elige una traducción para añadirla a la lista; las columnas siguen el orden de la lista.

  1. Lifandi Orð

Íslenska

Español

Русский

Čeština

Беларуская

English

Українська

Deutsch

Polski

Português

Türkçe

中文

Français

Italiano

Ἀρχαία Ἑλληνική

Српски / Srpski

Hrvatski

Eesti

Svenska

Magyar

Slovenčina

Suomi

Norsk bokmål

Tagalog

Cebuano

Hiligaynon

Nederlands

Български

Tiếng Việt

Bahasa Indonesia

ไทย

한국어

हिन्दी

English

  • JPS Tanakh
  • Targum Onkelos (Etheridge)

Deutsch

  • Byzantinischer Text
Lifandi Orð
16:1
OLO Innan skamms kemur kristin kona, að nafni Föbe, í heimsókn til ykkar. Hún hefur lagt mikið á sig fyrir söfnuðinn í Kenkreu og nú bið ég ykkur að taka vel á móti henni, eins og hæfir systur í Drottni.
16:2
OLO Veitið henni alla þá aðstoð sem ykkur er unnt, því að mörgum hefur hún hjálpað og þar á meðal mér.
16:3
OLO Berið Prisku og Akvílasi kveðju mína. Þau hafa starfað með mér við verk Jesú Krists.
16:4
OLO Þau hættu lífi sínu mín vegna og ég er ekki sá eini sem stend í þakkarskuld við þau, það gera allir söfnuðirnir meðal heiðingjanna.
16:5
OLO Gjörið svo vel að flytja einnig kveðjur mínar þeim sem koma saman til guðsþjónustu á heimili þeirra. Ég bið að heilsa Epænetusi vini mínum. Hann var sá fyrsti sem tók kristna trú í Asíu.
16:6
OLO Skilið kveðju til Maríu, hún lagði á sig mikið erfiði til að geta hjálpað okkur.
16:7
OLO Skilið einnig kveðju til Andróníkusar og Júníasar, ættingja minna sem voru með mér í fangelsi. Þeir urðu kristnir á undan mér og postularnir virða þá mikils – ég bið kærlega að heilsa þeim.
16:8
OLO Skilið kveðju til Amplíatusar, en hann elska ég sem barn Guðs,
16:9
OLO og einnig til Urbanusar, samstarfsmanns okkar, og Stakkýss okkar elskaða vinar.
16:10
OLO Apellesi, honum sendi ég kveðju mína en hann er góður maður og reyndur í Guði. Ég bið einnig kærlega að heilsa heimamönnum Aristóbúls.
16:11
OLO Skilið kveðju til Heródíons ættingja míns. Berið heimilisfólkinu hjá Narkissusi kveðju mína.
16:12
OLO Skilið kveðju til Trýfænu og Trýfósu, samverkamanna Drottins, og kæru Persis, sem lagt hefur mikið á sig fyrir Drottin.
16:13
OLO Ég bið að heilsa Rúfusi, sem Drottinn tók að sér, og móður hans, en hún var mér sem móðir.
16:14
OLO Ég bið einnig að heilsa Asýnkritusi, Flegon, Hermes, Patróbasi, Hermasi og bræðrunum sem með þeim eru.
16:15
OLO Skilið kærum kveðjum til Fílólógusar, Júlíu, Nerevs og systur hans, einnig til Ólympasar og allra hinna kristnu sem með þeim eru.
16:16
OLO Heilsið hvert öðru innilega. Allir söfnuðirnir hér um slóðir senda ykkur kveðju sína.
16:17
OLO Eitt á ég eftir að segja ykkur áður en ég lýk þessu bréfi og það er: Forðist þá sem valda klofningi og sundurþykkju, þá sem fara með rangar kenningar um Krist.
16:18
OLO Slíkir kennarar starfa ekki fyrir Drottin Jesú, heldur skara þeir eld að eigin köku. Þessir menn eru mælskir og oft láta einfeldningar glepjast af því sem þeir segja.
16:19
OLO En altalað er að þið séuð áreiðanleg og hlýðin og slíkt gleður mig mjög. Ég vil að þið haldið ykkur áfram að því sem rétt er og takið engan þátt í hinu illa.
16:20
OLO Guð friðarins mun brátt merja Satan undir fótum ykkar! Blessun Drottins Jesú Krists sé yfir ykkur.
16:21
OLO Tímóteus, samstarfsmaður minn, Lúkíus, Jason og Sósípater, ættmenn mínir biðja kærlega að heilsa ykkur.
16:22
OLO Ég, Tertíus, sem hef skrifað þetta bréf fyrir Pál, sendi ykkur einnig vinarkveðju.
16:23
OLO Gajus bað mig að skila kveðju til ykkar frá sér. Ég gisti hjá honum og söfnuðurinn kemur saman hér á heimili hans. Erastus, gjaldkeri borgarinnar, biður að heilsa, svo og Kvartus, en hann er bróðir í Kristi.
16:24
OLO Verið þið sæl. Náð Drottins Jesú Krists sé með ykkur öllum.
16:25
OLO [16:25–27] Ég fel ykkur Guði, honum sem megnar að styrkja ykkur og staðfesta í trúnni, eins og talað er um í gleðiboðskapnum sem ég flyt. Sá boðskapur er leiðin sem Guð hefur opnað öllum mönnum til hjálpræðis og sem öldum saman hefur legið í þagnargildi. En nú hefur það gerst samkvæmt skipun Guðs, eins og spámennirnir sögðu fyrir, að þessi boðskapur er fluttur meðal allra þjóða, svo að fólk um víða veröld trúi Kristi og hlýði honum. Guði, sem þekkir alla hluti, sé dýrð að eilífu fyrir Drottin Jesú Krist. Amen.
16:26
OLO
16:27
OLO