Psa Sálmarnir, sálmur Sálmarnir, sálmur 3
Sálmur eftir Davíð þegar hann flúði frá Absalon, syni sínum.
Ó, Drottinn, það eru svo margir á móti mér, svo margir sem gera uppreisn gegn mér. Menn segja að Guð muni alls ekki hjálpa mér. Psa 28:7En, Drottinn, þú ert skjöldur minn, sæmd mín og von. Þú lætur mig bera höfuðið hátt, þrátt fyrir allt.
Ég hrópaði til Drottins og hann svaraði mér frá musteri sínu í Jerúsalem. Þá lagðist ég fyrir og sofnaði í friði. Síðar vaknaði ég öruggur, því að Drottinn gætir mín. Luk 12:4Nú er ég óhræddur, jafnvel þótt tíu þúsund óvinir umkringi mig! Ég mun hrópa til Drottins: „Drottinn, rís þú upp! Bjargaðu mér, þú Guð minn!“ Og hann mun slá óvini mína og brjóta tennur illvirkjanna. Hjálpin kemur frá Guði. Blessun hans hvílir yfir þjóð hans.