Rom Rómverjabréfið, kafli Bréf Páls til Rómverja, kafli 7
Áður fyrr voru lög Gyðinga eiginmaður ykkar og húsbóndi. Síðan „dóuð“ þið með Kristi á krossinum og fyrst þið eruð „dáin“ þá eruð þið ekki lengur „gift“ lögunum. Þau ná ekki lengur yfir ykkur. Þegar Kristur reis upp, þá risuð þið einnig upp með honum og eruð því nýir menn. Við getum því sagt að nú séuð þið „gengin í hjónaband“ með honum sem reis upp frá dauðum, til að þið getið borið góðan ávöxt, það er að segja, gert það sem Guði er þóknanlegt. Rom 6:14; Rom 8:2; 2Co 11:2; Gal 5:22