2. Korintským 10 v různých překladech

Vyberte překlady k porovnání

Vyberte překlad, aby se přidal do seznamu; sloupce jdou v pořadí seznamu.

  1. Lifandi Orð

Íslenska

Čeština

Русский

Беларуская

English

Українська

Deutsch

Polski

Español

Português

Türkçe

中文

Français

Italiano

Ἀρχαία Ἑλληνική

Српски / Srpski

Hrvatski

Eesti

Svenska

Magyar

Slovenčina

Suomi

Norsk bokmål

Tagalog

Cebuano

Hiligaynon

Nederlands

Български

Tiếng Việt

Bahasa Indonesia

ไทย

한국어

हिन्दी

English

  • JPS Tanakh
  • Targum Onkelos (Etheridge)

Deutsch

  • Byzantinischer Text
Lifandi Orð
10:1
OLO Nú bið ég ykkur – já, ég Páll – og það af einlægni og mildi eins og Kristur mundi gera. Sum ykkar segja reyndar að ég sé harðorður í bréfum mínum en þori svo ekki að opna munninn þegar á hólminn er komið!
10:2
OLO Ég vona að ég þurfi ekki að sýna ykkur myndugleika og hörku þegar ég kem. Ég hef ekki áhuga á að láta til skarar skríða gegn þeim ykkar sem virðast halda að orð mín og verk séu rétt eins og gerist hjá fólki almennt.
10:3
OLO Satt er það, ég er ósköp venjulegur, veikburða maður, en ég nota þó ekki mannleg áform og mannlegar aðferðir til að vinna mína sigra.
10:4
OLO Ég nota ekki mannleg vopn, heldur hin öflugu vopn Guðs og með þeim brýt ég niður vígi Satans.
10:5
OLO Þessi vopn kveða niður öll hrokafull stóryrði sem beint er gegn Guði og ryðja öllum þeim hindrunum úr vegi, sem settar eru upp til að útiloka menn frá Guði. Með vopnum þessum get ég yfirbugað uppreisnarseggi, leitt þá fram fyrir Guð og breytt þeim í menn sem þrá það eitt að hlýðnast Kristi.
10:6
OLO Ég mun nota þessi vopn gegn ykkur til að þið gefist upp fyrir Kristi og ekki hætta fyrr en síðasti andófsmaðurinn fellur.
10:7
OLO Gallinn við ykkur er sá að þegar þið horfið á mig, þá sjáið þið aðeins hið veika og vanmáttuga. Af hverju gægist þið ekki inn fyrir skinnið? Ef nokkur telur sig hafa mátt Krists og myndugleika, þá er það ég!
10:8
OLO Sumum finnst ég kannski hrósa mér meira en góðu hófi gegnir, af valdi því sem ég hef yfir ykkur – og nota ykkur til hjálpar en ekki til tjóns – en ég skal standa við hvert orð.
10:9
OLO Þetta segi ég svo þið haldið ekki að ég sé að hræða ykkur með áminningum í bréfum mínum.
10:10
OLO „Kærið ykkur kollótt um þessi bréf hans,“ segja sumir. „Hann er að vísu stórorður en það er ekkert að marka. Þegar hann kemur, þá getið þið séð að þar er ekki stórmenni á ferð og lélegri predikara þekkjum við ekki!“
10:11
OLO Ég skal segja ykkur eitt: Næst þegar ég kem verð ég strangur, jafn strangur og ég hef verið í bréfum mínum.
10:12
OLO En verið ekki áhyggjufull! Ég mun ekki dirfast að bera mig saman við fjálglegar lýsingar þeirra á sjálfum sér. Þeir eru því miður alltaf að bera sig saman hver við annan. Þeir vega sjálfa sig og meta á sinn eigin smáa mælikvarða. Ja, hvílík heimska!
10:13
OLO En við? – við hrósum okkur ekki meira en efni standa til. Okkur er efst í huga að ná markinu sem Guð setti okkur, og starf okkar á meðal ykkar er unnið með það í huga.
10:14
OLO Við tökum ekki of djúpt í árinni þótt við segjumst hafa vald yfir ykkur, því að við vorum þeir fyrstu sem fluttu ykkur gleðifréttirnar um Krist.
10:15
OLO Við hrósum okkur ekki fyrir eitthvað sem aðrir hafa gert á meðal ykkar. Nei, en við vonum að trú ykkar vaxi og sömuleiðis starf okkar, ykkar á meðal, þó innan þeirra marka sem Drottinn hefur sett okkur.
10:16
OLO Eftir það getum við farið og predikað gleðiboðskapinn annars staðar, í borgum sem standa enn fjær, þar sem enginn hefur enn hafið starf. Þar verður engin hætta á að við fiskum á annarra miðum.
10:17
OLO Í Biblíunni stendur: „Vilji einhver hrósa sér, þá hrósi hann því, sem Drottinn hefur gert, en ekki hann sjálfur.“
10:18
OLO Hrósi einhver sjálfum sér og verki sínu, þá er af litlu að státa, en mæli Drottinn með honum, horfir öðruvísi við.