2. Korintubréf 10 í mismunandi þýðingum
Lifandi Orð
10:1
OLO
Nú bið ég ykkur – já, ég Páll – og það af einlægni og mildi eins og Kristur mundi gera. Sum ykkar segja reyndar að ég sé harðorður í bréfum mínum en þori svo ekki að opna munninn þegar á hólminn er komið!
10:2
OLO
Ég vona að ég þurfi ekki að sýna ykkur myndugleika og hörku þegar ég kem. Ég hef ekki áhuga á að láta til skarar skríða gegn þeim ykkar sem virðast halda að orð mín og verk séu rétt eins og gerist hjá fólki almennt.
10:3
OLO
Satt er það, ég er ósköp venjulegur, veikburða maður, en ég nota þó ekki mannleg áform og mannlegar aðferðir til að vinna mína sigra.
10:4
OLO
Ég nota ekki mannleg vopn, heldur hin öflugu vopn Guðs og með þeim brýt ég niður vígi Satans.
10:5
OLO
Þessi vopn kveða niður öll hrokafull stóryrði sem beint er gegn Guði og ryðja öllum þeim hindrunum úr vegi, sem settar eru upp til að útiloka menn frá Guði. Með vopnum þessum get ég yfirbugað uppreisnarseggi, leitt þá fram fyrir Guð og breytt þeim í menn sem þrá það eitt að hlýðnast Kristi.
10:6
OLO
Ég mun nota þessi vopn gegn ykkur til að þið gefist upp fyrir Kristi og ekki hætta fyrr en síðasti andófsmaðurinn fellur.
10:7
OLO
Gallinn við ykkur er sá að þegar þið horfið á mig, þá sjáið þið aðeins hið veika og vanmáttuga. Af hverju gægist þið ekki inn fyrir skinnið? Ef nokkur telur sig hafa mátt Krists og myndugleika, þá er það ég!
10:8
OLO
Sumum finnst ég kannski hrósa mér meira en góðu hófi gegnir, af valdi því sem ég hef yfir ykkur – og nota ykkur til hjálpar en ekki til tjóns – en ég skal standa við hvert orð.
10:9
OLO
Þetta segi ég svo þið haldið ekki að ég sé að hræða ykkur með áminningum í bréfum mínum.
10:10
OLO
„Kærið ykkur kollótt um þessi bréf hans,“ segja sumir. „Hann er að vísu stórorður en það er ekkert að marka. Þegar hann kemur, þá getið þið séð að þar er ekki stórmenni á ferð og lélegri predikara þekkjum við ekki!“
10:11
OLO
Ég skal segja ykkur eitt: Næst þegar ég kem verð ég strangur, jafn strangur og ég hef verið í bréfum mínum.
10:12
OLO
En verið ekki áhyggjufull! Ég mun ekki dirfast að bera mig saman við fjálglegar lýsingar þeirra á sjálfum sér. Þeir eru því miður alltaf að bera sig saman hver við annan. Þeir vega sjálfa sig og meta á sinn eigin smáa mælikvarða. Ja, hvílík heimska!
10:13
OLO
En við? – við hrósum okkur ekki meira en efni standa til. Okkur er efst í huga að ná markinu sem Guð setti okkur, og starf okkar á meðal ykkar er unnið með það í huga.
10:14
OLO
Við tökum ekki of djúpt í árinni þótt við segjumst hafa vald yfir ykkur, því að við vorum þeir fyrstu sem fluttu ykkur gleðifréttirnar um Krist.
10:15
OLO
Við hrósum okkur ekki fyrir eitthvað sem aðrir hafa gert á meðal ykkar. Nei, en við vonum að trú ykkar vaxi og sömuleiðis starf okkar, ykkar á meðal, þó innan þeirra marka sem Drottinn hefur sett okkur.
10:16
OLO
Eftir það getum við farið og predikað gleðiboðskapinn annars staðar, í borgum sem standa enn fjær, þar sem enginn hefur enn hafið starf. Þar verður engin hætta á að við fiskum á annarra miðum.
10:17
OLO
Í Biblíunni stendur: „Vilji einhver hrósa sér, þá hrósi hann því, sem Drottinn hefur gert, en ekki hann sjálfur.“
10:18
OLO
Hrósi einhver sjálfum sér og verki sínu, þá er af litlu að státa, en mæli Drottinn með honum, horfir öðruvísi við.