OLOJesús sagði við lærisveinana: „Fólk mun halda áfram að falla í synd, en vei þeim sem því veldur.
17:2
OLO[17:2–3]Honum væri betra að láta fleygja sér í sjóinn, með þungan stein um hálsinn, en skaða sálir smælingjanna. Gætið ykkar! Ávítaðu bróður þinn, ef hann syndgar, en fyrirgefðu honum, þegar hann iðrast.
17:3
OLO
17:4
OLOGeri hann þér rangt til sjö sinnum á dag og komi til þín eftir hvert skipti og biðji fyrirgefningar, þá fyrirgefðu honum.“
17:5
OLODag einn sögðu postularnir við Drottin: „Við þurfum að öðlast meiri trú, hvernig getum við það?“
17:6
OLOJesús svaraði: „Ef þið hafið trú á stærð við sinnepskorn, þá er hún nægileg til að rífa upp mórberjatréð sem þarna stendur og senda það í loftköstum á haf út! Orðum ykkar yrði þegar í stað hlýtt.
17:7
OLO[17:7–9]Þegar vinnumaður kemur inn frá jarðyrkju eða gegningum, þá sest hann ekki niður til að borða. Hann matreiðir fyrst fyrir húsbónda sinn og ber kvöldverð á borð fyrir hann, áður en hann fær sér sjálfur. Og honum er ekki þakkað, því að þetta eru skylduverk hans.
17:8
OLO
17:9
OLO
17:10
OLOÞið eigið ekki heldur að vænta heiðurs fyrir að hlýða mér, því að þá hafið þið aðeins gert skyldu ykkar.“
17:11
OLO[17:11–12]Á leið sinni frá Jerúsalem komu þeir að þorpi á landamærum Galíleu og Samaríu. Þá sáu þeir tíu holdsveika menn, sem stóðu langt frá, utan við þorpið,
OLOHann leit á þá og sagði: „Farið til prestanna og fáið hjá þeim vottorð um að þið séuð heilbrigðir.“ Á meðan þeir voru á leiðinni til prestanna, hvarf þeim holdsveikin!
17:15
OLOEinn þeirra sneri þá aftur til Jesús og hrópaði: „Guði sé lof! Ég er heilbrigður!“
17:16
OLOHann fleygði sér á götuna við fætur Jesú og þakkaði honum. Maður þessi var Samverji, en Gyðingar fyrirlitu þá.
17:17
OLOÞá spurði Jesús: „Voru þeir ekki tíu sem ég læknaði? Hvar eru hinir níu?
17:18
OLOVar þessi útlendingur sá eini sem sneri við til að gefa Guði dýrðina?“
17:19
OLOSíðan sagði hann við manninn: „Stattu upp og farðu leiðar þinnar, trú þín hefur læknað þig.“
17:20
OLODag einn spurðu farísearnir Jesú: „Hvenær kemur guðsríki?“ „Guðsríki birtist ekki þannig að á því beri,“ svaraði Jesús.
17:21
OLO„Þið munuð ekki geta sagt: „Það hófst á þessum stað eða í þessum landshluta“ því að áhrifa guðsríkisins gætir með manninum.“
17:22
OLOSíðar ræddi hann þetta við lærisveinana og sagði: „Sá tími mun koma er þið þráið að hafa mig hjá ykkur, þó ekki sé nema einn dag, en þá verð ég ekki hér.
17:23
OLOYkkur munu berast fréttir um að ég sé kominn aftur og sé hér eða þar. Trúið ekki slíku. Farið ekki að leita mín,
17:24
OLOþví að þegar ég kem, þá verður það engum vafa undirorpið. Það verður jafn augljóst og þegar elding leiftrar um himininn.
17:25
OLOEn fyrst verð ég að líða miklar þjáningar og þjóð mín mun hafna mér.
17:26
OLOÞegar ég kem aftur, verður heimurinn jafn sinnulaus um Guð og hann var á dögum Nóa.
17:27
OLOFólk át og drakk og gifti sig allt til þess dags er Nói gekk inn í örkina. Eftir það kom flóðið og tortímdi þeim öllum.
17:28
OLOÞað mun verða eins og á dögum Lots: Fólk sinnti sínum daglegu störfum, át og drakk, keypti og seldi, ræktaði og byggði
17:29
OLO– allt til þeirrar stundar er Lot yfirgaf Sódómu. Þá rigndi eldi og brennisteini yfir þá af himni og eyddi þeim öllum.
17:30
OLOÞannig mun fólk verða önnum kafið við sín daglegu störf er ég kem aftur.
17:31
OLOÞeir sem úti eru þann dag mega ekki fara inn til að pakka niður. Þeir sem verða við vinnu á ökrum mega ekki heldur fara heim
OLOSá sem heldur í líf sitt mun glata því, en sá sem fórnar því, mun bjarga því.
17:34
OLOÞá nótt munu tveir menn sofa í sama rúmi, annar verður tekinn burt en hinn skilinn eftir.
17:35
OLO[17:35–36]Tvær konur munu vinna saman að heimilisstörfum, önnur verður tekin, hin skilin eftir. Sama er að segja um þá sem vinna hlið við hlið á ökrunum. Annar verður tekinn, hinn skilinn eftir.“
17:36
OLO
17:37
OLO„Hvar verður hann skilinn eftir?“ spurðu lærisveinarnir. „Það verður augljóst þegar að því kemur,“ svaraði Jesús, „jafn augljóst og það, að þangað sem hræið liggur munu gammarnir þyrpast.“
Vaše překlady jsou sada z posledního porovnání, které jste otevřeli tlačítkem „Porovnat“ nebo si zapamatovali; dokud žádná sada není, stane se jí první porovnání otevřené přímo – ze záložky nebo z odkazu mimo web. Pokud sada obsahuje alespoň dva překlady a toto místo obsahují všechny, porovnání se otevře bez formuláře pro výběr.
Označte hvězdičkou překlady, které chcete mít v oblíbených.
Písmo
Velikost textu
Na počátku bylo Slovo, a to Slovo bylo u Boha, a to Slovo byl Bůh
Přehrávače se zobrazí bez kliknutí a samy se nespustí; stránka s videem se okamžitě připojí k youtube.com. Dokud je nastavení zapnuté, videa se načítají z YouTube.
Odkud načítat videa
Pokud YouTube neodpovídá, video se načte ze serveru webu, je-li tam kopie.
Obnovení nastavení
Všechna nastavení budou vrácena na výchozí hodnoty. Opravdu chcete pokračovat?