Luca 17 in diverse traduzioni

Scegli le traduzioni da confrontare

Scegli una traduzione per aggiungerla all'elenco; le colonne seguono l'ordine dell'elenco.

  1. Lifandi Orð

Íslenska

Italiano

Русский

Čeština

Беларуская

English

Українська

Deutsch

Polski

Español

Português

Türkçe

中文

Français

Ἀρχαία Ἑλληνική

Српски / Srpski

Hrvatski

Eesti

Svenska

Magyar

Slovenčina

Suomi

Norsk bokmål

Tagalog

Cebuano

Hiligaynon

Nederlands

Български

Tiếng Việt

Bahasa Indonesia

ไทย

한국어

हिन्दी

English

  • JPS Tanakh
  • Targum Onkelos (Etheridge)
Lifandi Orð
17:1
OLO Jesús sagði við lærisveinana: „Fólk mun halda áfram að falla í synd, en vei þeim sem því veldur.
17:2
OLO [17:2–3] Honum væri betra að láta fleygja sér í sjóinn, með þungan stein um hálsinn, en skaða sálir smælingjanna. Gætið ykkar! Ávítaðu bróður þinn, ef hann syndgar, en fyrirgefðu honum, þegar hann iðrast.
17:3
OLO
17:4
OLO Geri hann þér rangt til sjö sinnum á dag og komi til þín eftir hvert skipti og biðji fyrirgefningar, þá fyrirgefðu honum.“
17:5
OLO Dag einn sögðu postularnir við Drottin: „Við þurfum að öðlast meiri trú, hvernig getum við það?“
17:6
OLO Jesús svaraði: „Ef þið hafið trú á stærð við sinnepskorn, þá er hún nægileg til að rífa upp mórberjatréð sem þarna stendur og senda það í loftköstum á haf út! Orðum ykkar yrði þegar í stað hlýtt.
17:7
OLO [17:7–9] Þegar vinnumaður kemur inn frá jarðyrkju eða gegningum, þá sest hann ekki niður til að borða. Hann matreiðir fyrst fyrir húsbónda sinn og ber kvöldverð á borð fyrir hann, áður en hann fær sér sjálfur. Og honum er ekki þakkað, því að þetta eru skylduverk hans.
17:8
OLO
17:9
OLO
17:10
OLO Þið eigið ekki heldur að vænta heiðurs fyrir að hlýða mér, því að þá hafið þið aðeins gert skyldu ykkar.“
17:11
OLO [17:11–12] Á leið sinni frá Jerúsalem komu þeir að þorpi á landamærum Galíleu og Samaríu. Þá sáu þeir tíu holdsveika menn, sem stóðu langt frá, utan við þorpið,
17:12
OLO
17:13
OLO og hrópuðu: „Jesú, meistari, miskunnaðu okkur!“
17:14
OLO Hann leit á þá og sagði: „Farið til prestanna og fáið hjá þeim vottorð um að þið séuð heilbrigðir.“ Á meðan þeir voru á leiðinni til prestanna, hvarf þeim holdsveikin!
17:15
OLO Einn þeirra sneri þá aftur til Jesús og hrópaði: „Guði sé lof! Ég er heilbrigður!“
17:16
OLO Hann fleygði sér á götuna við fætur Jesú og þakkaði honum. Maður þessi var Samverji, en Gyðingar fyrirlitu þá.
17:17
OLO Þá spurði Jesús: „Voru þeir ekki tíu sem ég læknaði? Hvar eru hinir níu?
17:18
OLO Var þessi útlendingur sá eini sem sneri við til að gefa Guði dýrðina?“
17:19
OLO Síðan sagði hann við manninn: „Stattu upp og farðu leiðar þinnar, trú þín hefur læknað þig.“
17:20
OLO Dag einn spurðu farísearnir Jesú: „Hvenær kemur guðsríki?“ „Guðsríki birtist ekki þannig að á því beri,“ svaraði Jesús.
17:21
OLO „Þið munuð ekki geta sagt: „Það hófst á þessum stað eða í þessum landshluta“ því að áhrifa guðsríkisins gætir með manninum.“
17:22
OLO Síðar ræddi hann þetta við lærisveinana og sagði: „Sá tími mun koma er þið þráið að hafa mig hjá ykkur, þó ekki sé nema einn dag, en þá verð ég ekki hér.
17:23
OLO Ykkur munu berast fréttir um að ég sé kominn aftur og sé hér eða þar. Trúið ekki slíku. Farið ekki að leita mín,
17:24
OLO því að þegar ég kem, þá verður það engum vafa undirorpið. Það verður jafn augljóst og þegar elding leiftrar um himininn.
17:25
OLO En fyrst verð ég að líða miklar þjáningar og þjóð mín mun hafna mér.
17:26
OLO Þegar ég kem aftur, verður heimurinn jafn sinnulaus um Guð og hann var á dögum Nóa.
17:27
OLO Fólk át og drakk og gifti sig allt til þess dags er Nói gekk inn í örkina. Eftir það kom flóðið og tortímdi þeim öllum.
17:28
OLO Það mun verða eins og á dögum Lots: Fólk sinnti sínum daglegu störfum, át og drakk, keypti og seldi, ræktaði og byggði
17:29
OLO – allt til þeirrar stundar er Lot yfirgaf Sódómu. Þá rigndi eldi og brennisteini yfir þá af himni og eyddi þeim öllum.
17:30
OLO Þannig mun fólk verða önnum kafið við sín daglegu störf er ég kem aftur.
17:31
OLO Þeir sem úti eru þann dag mega ekki fara inn til að pakka niður. Þeir sem verða við vinnu á ökrum mega ekki heldur fara heim
17:32
OLO – munið hvað kom fyrir konu Lots!
17:33
OLO Sá sem heldur í líf sitt mun glata því, en sá sem fórnar því, mun bjarga því.
17:34
OLO Þá nótt munu tveir menn sofa í sama rúmi, annar verður tekinn burt en hinn skilinn eftir.
17:35
OLO [17:35–36] Tvær konur munu vinna saman að heimilisstörfum, önnur verður tekin, hin skilin eftir. Sama er að segja um þá sem vinna hlið við hlið á ökrunum. Annar verður tekinn, hinn skilinn eftir.“
17:36
OLO
17:37
OLO „Hvar verður hann skilinn eftir?“ spurðu lærisveinarnir. „Það verður augljóst þegar að því kemur,“ svaraði Jesús, „jafn augljóst og það, að þangað sem hræið liggur munu gammarnir þyrpast.“