PsaSal. SálmarnirSalmos, sálmursalmo SálmarnirLibro de los Salmos, sálmursalmo 62

Traducciones

Ég bíð rólegur og þögull eftir hjálp Drottins. Psa 37:7; Psa 18:2Hann einn er bjarg mitt og lausnari, vörn mín og vígi. Ég hef ekkert að óttast.

En hvað um þessa menn sem ásaka mig þegar veldi mitt stendur höllum fæti, vilja mig feigan og ljúga og pretta til að steypa mér af stóli. Þeir tala fagurgala, satt er það, en hata mig í hjörtum sínum! Psa 28:3En ég stend þögull frammi fyrir fyrir Drottni og vænti hjálpar hans. Hann einn getur hjálpað. Já, hann einn er bjarg mitt, og lausnari, vörn mín og vígi. Ég hef ekkert að óttast.

Öryggi mitt og farsæld er í hendi Drottins. Hann einn er skjól mitt og klettur – þangað kemst óvinurinn ekki!Psa 4:5

Þú þjóð mín, treystu Drottni. Segið honum óskir ykkar, hann getur uppfyllt þær! Psa 39:5Mennirnir miklast og hrokast í hégóma sínum. Einn þykist öðrum meiri, en hann metur alla jafnt.Mat 19:24; Luk 12:19; 1Ti 6:9; 1Ti 6:17

Safnið ekki auði með svikum og ránum og treystið ekki illa fengnu fé. Treystið Drottni! Minnist þess aftur og aftur að Drottins er styrkurinn. Mat 16:27; Rom 2:6Já, hjá þér Drottinn, er miskunn og þú launar sérhverjum eftir verkum hans.Mat 16:27; Rom 2:6