Salmos 59 en diferentes traducciones
Lifandi Orð
59:1
OLO
Þennan sálm orti Davíð þegar Sál konungur sendi menn heim til hans til að handsama hann og drepa (sjá: 1. Sam. 19:11).
59:2
OLO
Ó, Guð minn, frelsaðu mig frá óvinum mínum! Verndaðu mig gegn þeim sem vilja drepa mig!
59:3
OLO
Forðaðu mér frá þessum glæpalýð, þessum morðingjum.
59:4
OLO
Þeir sitja um líf mitt. Sterkir menn bíða útifyrir. Drottinn, þeir eru ekki hér af því að ég hafi gert þeim rangt.
59:5
OLO
Samt vilja þeir drepa mig! Drottinn, vaknaðu! Sjáðu hvað er að gerast! Hjálpaðu mér!
59:6
OLO
Þú Drottinn, Guð hinna himnesku hersveita, Guð Ísraels, rís þú upp og refsa heiðnu þjóðunum sem umhverfis okkur búa. Miskunna ekki illgjörðamönnum.
59:7
OLO
Að kvöldi koma þeir og njósna. Þeir snuðra eins og hundar og ráfa um borgina.
59:8
OLO
Ég heyri háðsglósur þeirra og hvernig þeir formæla Guði. „Enginn heyrir til okkar,“ segja þeir.
59:9
OLO
En þú Drottinn, hlærð að þeim, gerir einnig gys að heiðingjunum sem umhverfis okkur búa.
59:10
OLO
Guð, þú ert styrkur minn! Ég vil syngja þér lof, því að þú ert skjól mitt og hlíf.
59:11
OLO
Guð mætir mér með náð sinni. Hann lætur mig sjá þegar óvinir mínir verða auðmýktir.
59:12
OLO
Ekki lífláta þá, þeirri ráðningu gleymir þjóð mín fljótt. Steyptu þeim heldur af stóli. Varpa þeim til jarðar, Drottinn, þú skjöldur minn.
59:13
OLO
Þeir eru hrokafullir. Þeir formæla og ljúga.
59:14
OLO
Sviptu þeim burt með reiði þinni svo að þeir verði ekki framar til. Láttu þá kenna á því og sjá að þú, Drottinn, ert við völd í Ísrael og um allan heim.
59:15
OLO
Á hverju kvöldi koma þeir aftur, ýlfra eins og hundar og ráfa um borgina, urra og leita að æti.
59:16
OLO
En ég? – Á hverjum morgni vil ég syngja um miskunn þína og mátt, því að á degi neyðarinnar varstu mér vígi.
59:17
OLO
Þú styrkur minn, um þig vil ég syngja ljóðin mín. Þú háborg mín! Þú minn miskunnsami Guð!