Sálmarnir 59 í mismunandi þýðingum

Veldu þýðingar til samanburðar

Veldu þýðingu til að bæta henni á listann; dálkarnir fylgja röð listans.

  1. Lifandi Orð

Íslenska

Русский

Čeština

Беларуская

English

Українська

Deutsch

Polski

Español

Português

Türkçe

中文

Français

Italiano

Српски / Srpski

Hrvatski

Svenska

Magyar

Tagalog

Cebuano

Hiligaynon

Nederlands

Tiếng Việt

ไทย

한국어

हिन्दी

Русский

  • Десницкий
  • Кассиан

English

  • African International (Paraphrase, American)
  • African International (Paraphrase, British)
  • African International (Literal, American)
  • African International (Literal, British)
  • Majority Text
  • Targum Onkelos (Etheridge)
  • Text-Critical English

Deutsch

  • Byzantinischer Text

Polski

  • Słowo Życia

Español

  • Biblia Libre (Nuevo Testamento)

Português

  • Tradução para Tradutores

Türkçe

  • Temel Tercüme

中文

  • 易读圣经

Ἀρχαία Ἑλληνική

  • Textus Receptus
  • Patriarchal 1904
  • Solid Rock
  • Family 35
  • Text-Critical Greek

Hrvatski

  • Knjiga o Kristu

Čeština

  • Slovo na cestu

Eesti

  • Kaasaegne eesti

Magyar

  • Élet, igazság és világosság

Slovenčina

  • Nádej pre každého

Suomi

  • Elävä uutinen

Norsk bokmål

  • En Levende Bok

Nederlands

  • Gods Boek

Български

  • Съвременен

Bahasa Indonesia

  • Mudah Dibaca
Lifandi Orð
59:1
OLO Þennan sálm orti Davíð þegar Sál konungur sendi menn heim til hans til að handsama hann og drepa (sjá: 1. Sam. 19:11).
59:2
OLO Ó, Guð minn, frelsaðu mig frá óvinum mínum! Verndaðu mig gegn þeim sem vilja drepa mig!
59:3
OLO Forðaðu mér frá þessum glæpalýð, þessum morðingjum.
59:4
OLO Þeir sitja um líf mitt. Sterkir menn bíða útifyrir. Drottinn, þeir eru ekki hér af því að ég hafi gert þeim rangt.
59:5
OLO Samt vilja þeir drepa mig! Drottinn, vaknaðu! Sjáðu hvað er að gerast! Hjálpaðu mér!
59:6
OLO Þú Drottinn, Guð hinna himnesku hersveita, Guð Ísraels, rís þú upp og refsa heiðnu þjóðunum sem umhverfis okkur búa. Miskunna ekki illgjörðamönnum.
59:7
OLO Að kvöldi koma þeir og njósna. Þeir snuðra eins og hundar og ráfa um borgina.
59:8
OLO Ég heyri háðsglósur þeirra og hvernig þeir formæla Guði. „Enginn heyrir til okkar,“ segja þeir.
59:9
OLO En þú Drottinn, hlærð að þeim, gerir einnig gys að heiðingjunum sem umhverfis okkur búa.
59:10
OLO Guð, þú ert styrkur minn! Ég vil syngja þér lof, því að þú ert skjól mitt og hlíf.
59:11
OLO Guð mætir mér með náð sinni. Hann lætur mig sjá þegar óvinir mínir verða auðmýktir.
59:12
OLO Ekki lífláta þá, þeirri ráðningu gleymir þjóð mín fljótt. Steyptu þeim heldur af stóli. Varpa þeim til jarðar, Drottinn, þú skjöldur minn.
59:13
OLO Þeir eru hrokafullir. Þeir formæla og ljúga.
59:14
OLO Sviptu þeim burt með reiði þinni svo að þeir verði ekki framar til. Láttu þá kenna á því og sjá að þú, Drottinn, ert við völd í Ísrael og um allan heim.
59:15
OLO Á hverju kvöldi koma þeir aftur, ýlfra eins og hundar og ráfa um borgina, urra og leita að æti.
59:16
OLO En ég? – Á hverjum morgni vil ég syngja um miskunn þína og mátt, því að á degi neyðarinnar varstu mér vígi.
59:17
OLO Þú styrkur minn, um þig vil ég syngja ljóðin mín. Þú háborg mín! Þú minn miskunnsami Guð!