OLOÆ! Ísrael, þjóð mín! Gyðingar, samlandar mínir. Ó, hve ég vildi að þeir hefðu tekið við Kristi!
9:2
OLOÞetta veldur mér angist og kvöl, jafnt daga sem nætur.
9:3
OLOBæði Kristur og heilagur andi vita að ég er ekki að hræsna þótt ég segi að ég sé fús að velja eilífa glötun, ef það gæti orðið þeim til hjálpræðis.
9:4
OLOGuð hefur verið þeim góður en samt vilja þeir ekki hlýða honum. Hann tók þá að sér sem útvalda þjóð og leiddi þá áfram í björtu og dýrlegu skýi og sýndi þeim blessun sína. Hann setti þeim lög og reglur til að fara eftir í daglegu lífi, svo að þeir þekktu vilja hans. Hann leyfði þeim að tilbiðja sig og hann gaf þeim mikil fyrirheit.
9:5
OLOForfeður þeirra voru miklar trúarhetjur og sjálfur var Kristur einn af þeim. Hann fæddist sem Gyðingur en nú er hann öllum æðri. Dýrð sé Guði um aldur og ævi!
9:6
OLOJá, en hefur Guð þá ekki getað staðið við loforðin sem hann gaf Gyðingunum? Jú, (en athugið að þessi loforð eru einungis ætluð þeim sem eru sannir Gyðingar). Ekki eru allir þeir, sem fæðast Gyðingar, sannir Gyðingar.
9:7
OLOÞað eitt að þeir eru afkomendur Abrahams, gerir þá ekki að sönnum börnum Abrahams. Abraham átti mörg börn, en Gamla testamentið segir að loforðin séu aðeins ætluð Ísak syni hans og afkomendum hans.
9:8
OLOÞetta þýðir að ekki hafa allir afkomendur Abrahams verið börn Guðs, heldur þeir einir sem trúa loforðinu sem Guð gaf Abraham um hjálpræðið.
9:9
OLOLoforðið var þannig: „Á næsta ári mun ég gefa ykkur, þér og Söru, son.“
9:10
OLO[9:10–13]Og árin liðu og þessi sonur, Ísak, óx og þegar hann var orðinn fullorðinn, giftist hann konu sem hét Rebekka. Þegar Rebekka eignaðist tvíbura, sagði Guð henni að Esaú, barnið sem fæddist fyrst, myndi verða þjónn Jakobs, tvíburabróður síns. Gamla testamentið lýsir þessu svo: „Jakob mun ég blessa en ekki Esaú.“ Þetta sagði Guð áður en drengirnir fæddust, áður en þeir höfðu tækifæri til að gera gott eða illt. Af þessu má sjá að Guð var að framkvæma fyrirætlun sína, sem hann hafði ákveðið löngu áður, en hann var ekki að launa drengjunum fyrir neitt, hvorki gott né illt.
9:11
OLO
9:12
OLO
9:13
OLO
9:14
OLOVar Guð ósanngjarn að fara þannig að? Nei, vissulega ekki.
9:15
OLOGuð sagði við Móse: „Vilji ég sýna einhverjum góðvild, þá geri ég það. Ég miskunna þeim sem mér sjálfum sýnist.“
9:16
OLOBlessun Guðs veitist ekki þeim einum sem ákveðið hafa að öðlast hana og sem leggja á sig erfiði í þeim tilgangi, heldur þeim sem Guð hefur ákveðið að miskunna.
9:17
OLOGott dæmi um þetta er Faraó Egyptalandskonungur. Guð sagði við Faraó, að hann hefði gefið honum konungdóm yfir Egyptalandi til þess eins að sýna á honum sinn mikla mátt, svo að allur heimurinn fengi að heyra um mátt Guðs og mikilleika.
9:18
OLOAf þessu sjáið þið að Guð er góður við suma vegna þess eins að hann kýs að vera það og einnig kemur hann því til leiðar að aðrir vilja ekki hlusta.
9:19
OLO„Já, en,“ segir þú, „hvers vegna ásakar þá Guð þá um að vilja ekki hlusta? Var það ekki hann sjálfur sem olli því?“
9:20
OLOSegðu þetta ekki. Telur þú þig geta gagnrýnt Guð? Á smíðisgripurinn að segja við smiðinn: „Af hverju gerðir þú mig svona?“
9:21
OLOLeirkerasmiðurinn hefur jafnan rétt til að móta fagran skrautvasa og krukku undir rusl, úr leirnum.
9:22
OLOHefur Guð ekki fullkominn rétt til að sýna mátt sinn og reiði gegn þeim sem hann hefur umborið lengi og bíða þess eins að verða eyðileggingu að bráð?
9:23
OLO[9:23–24]Sömuleiðis hefur hann rétt til að hlífa öðrum – eins og til dæmis okkur. Hann skapaði okkur í þeim tilgangi að auðga okkur af allri dýrð sinni og þá er sama hvort við erum Gyðingar eða heiðingjar. Þetta gerði hann til að sýna okkur kærleika sinn, svo allir gætu séð hve dýrð hans er mikil.
9:24
OLO
9:25
OLOMunið þið eftir spádómi Hósea? Þar segir Guð að hann muni leita sér að öðrum börnum (sem ekki eru gyðingaættar) og hann muni elska þau, þótt enginn hafi elskað þau áður.
9:26
OLOMunið það sem eitt sinn var sagt um heiðingjana: „Ekki eruð þið mitt fólk,“ og þeir sömu munu kallaðir verða „synir hins lifandi Guðs.“
9:27
OLOJesaja kallaði til Gyðinganna: „Enda þótt þið skiptið milljónum, þá mun aðeins lítill hluti ykkar frelsast!“
9:28
OLO„Drottinn mun fullnægja dómi sínum á jörðinni án tafar.“
9:29
OLOÁ öðrum stað segir Jesaja, að væri Guð ekki miskunnsamur myndu allir Gyðingar farast – hver einn og einasti – rétt eins og þeir sem bjuggu í borgunum Sódómu og Gómorru.
9:30
OLOHvað finnst ykkur um það, að Guð hefur gefið heiðingjunum tækifæri til að fá fyrirgefningu syndanna með því að trúa, þótt þeir í raun hafi alls ekki leitað Guðs?
9:31
OLOGyðingarnir lögðu hins vegar mikið á sig til að þóknast Guði með því að hlýða lögum hans, en án árangurs.
9:32
OLOHvers vegna? Vegna þess að þeir reyndu að frelsast með því að halda lögin og gera gott, í stað þess að treysta á leið trúarinnar. Þeir hafa hrasað um stóra hrösunarsteininn.
9:33
OLOGuð varaði þá við með þessum orðum í Gamla testamentinu: „Ég hef lagt hornstein meðal Gyðinga, og um hann (Jesú) munu margir hrasa, en þeir sem á hann trúa verða aldrei fyrir vonbrigðum, né til skammar.“
Vos traductions sont l’ensemble de la dernière comparaison que vous avez ouverte avec « Comparer » ou mémorisée ; tant qu’il n’y en a pas, la première comparaison ouverte directement — depuis un marque-page ou un lien extérieur au site — le devient. Quand l’ensemble compte au moins deux traductions et que toutes contiennent le passage, la comparaison s’ouvre sans le formulaire de choix.
Marquez d’une étoile les traductions à garder dans vos favoris.
Police
Taille du texte
Au commencement était la Parole ; et la Parole était auprès de Dieu ; et la Parole était Dieu
Les lecteurs s’affichent sans clic et ne démarrent pas d’eux-mêmes ; une page contenant une vidéo contacte immédiatement youtube.com. Tant que ce réglage est activé, les vidéos se chargent depuis YouTube.
Charger les vidéos depuis
Si YouTube ne répond pas, la vidéo est chargée depuis le serveur du site lorsqu’une copie s’y trouve.
Réinitialiser les paramètres
Tous les paramètres seront réinitialisés à leurs valeurs par défaut. Êtes-vous sûr ?