Psa Sálmarnir, sálmur Sálmarnir, sálmur 52
Þennan sálm orti Davíð til að andmæla óvini sínum Dóeg sem síðar tók af lífi áttatíu og fimm presta og fjölskyldur þeirra (sjá: 1. Sam. 22.).
Kallar þú þig hetju?! Þú sem hreykir þér af ódæði gegn þjóð Guðs og herðir þig gegn miskunn hans. Þú ert eins og skeinuhættur hnífur, þú svikahrappur! Psa 57:4Þú elskar illt meir en gott, lygi umfram sannleika. Rógburð elskar þú og annað skaðræðistal!
En Guð mun koma þér á kné, draga þig út úr húsi þínu og uppræta af landi lifenda. Psa 50:22Hinir réttlátu munu sjá það og óttast Guð, síðan hlægja og segja: „Svo fer fyrir þeim sem fyrirlíta Guð og treysta á mátt sinn og megin, þeim sem þrjóskast í illsku sinni.“Psa 49:6; Mrk 10:24
Ég er sem grænt olífutré í garði Guðs. Ég treysti á miskunn hans meðan ég lifi. Psa 92:12Drottinn, ég vil vegsama þig að eilífu og þakka það sem þú hefur gert. Ég segi hinum trúuðu: Góður er Guð!Psa 37:5