PsaPs SálmarnirPsalmi, sálmurpsalam SálmarnirPsalmi, sálmurpsalam 87

Prijevodi Usporedi

Hátt á hinu heilaga fjalli, stendur Jerúsalem, borg Guðs – borgin sem hann elskar öllum borgum framar.

Vel er um þig talað, þú borg Guðs! Ef ég í vinahópi minnist á Egyptaland eða Babýlon, Filisteu eða Týrus eða hið fjarlæga Bláland, þá hrósa þeir sér sem fæddir eru á þessum stöðum. En mestur heiður fylgir Jerúsalem! Hún er móðirin og gott er að vera fæddur þar! Hann, hinn hæsti Guð, mun sjálfur vernda hana.Gal 4:26

Þegar Drottinn lítur yfir þjóðskrárnar, mun hann merkja við þá sem hér eru fæddir!

Á hátíðum og tyllidögum munu menn syngja: „Jerúsalem, uppsprettur lífs míns eru í þér!“