Act Postulasagan, kafli Postulasagan, kafli 1

Þýðingar Bera saman

Kæri Þeófílus!

Fyrri frásaga mín var um allt sem Jesús gerði og kenndi. Luk 1:3Hvernig hann sneri aftur til himna, eftir að hafa flutt postulunum, sem hann valdi, sérstök fyrirmæli frá heilögum anda. Mrk 16:15; Jhn 20:21Næstu fjörutíu daga eftir krossfestinguna birtist hann þeim oft og sannaði að hann væri raunverulega lifandi, og talaði við þá um guðsríki.Mat 28:7; Mrk 16:14

Jesús fer til himna

Eitt sinn, er þeir voru saman komnir, sagði hann þeim að fara ekki burt frá Jerúsalem fyrr en heilagur andi hefði komið yfir þá, samkvæmt loforði föðurins, en um það hafði hann rætt við þá áður.Luk 24:49; Jhn 14:26

Hann minnti þá á að Jóhannes hefði skírt með vatni og bætti síðan við „en eftir nokkra daga verðið þið skírðir með heilögum anda.“Mat 3:11; Mrk 1:8

Seinna birtist hann þeim aftur og þá spurðu þeir hann: „Drottinn, ætlarðu að frelsa Ísrael núna (undan valdi Rómverja) og endurreisa sjálfstæði þjóðar okkar?“

„Faðirinn einn ákveður hvenær það verður,“ svaraði hann, „og ykkur er ekki ætlað að vita það fyrir. En þegar heilagur andi kemur yfir ykkur, þá munuð þið fá djörfung og kraft til að vitna um dauða minn og upprisu fyrir íbúum Jerúsalem, Júdeu, Samaríu – já, öllum heiminum.“Luk 24:49; Act 2:32

Og Jesús hafði ekki fyrr lokið þessum orðum sínum en hann var hafinn frá jörðu og hvarf í ský, en þeir stóðu einir eftir og störðu á eftir honum. Mrk 16:19; Luk 24:51En er þeir störðu til himins og reyndu að koma auga á hann, stóðu skyndilega hjá þeim tveir menn í hvítum klæðum. Þeir sögðu: „Hvers vegna standið þið hér og starið til himins? Jesús er farinn til himna! En dag einn mun hann koma aftur, og þá á sama hátt og hann fór.“Mat 25:31; Mat 26:64; 1Th 1:10; Rev 1:7

Eftir þennan atburð, sem varð á Olíufjallinu, sneru lærisveinarnir til Jerúsalem, sem var spölkorn þaðan. Er þangað kom fóru þeir í loftstofuna, þar sem þeir héldu til. Lærisveinarnir voru þessir: Pétur, Jóhannes og Jakob, Andrés, Filippus, Tómas, Bartólómeus, Matteus, Jakob Alfeusson, Símon (kallaður „hinn róttæki“) og Júdas Jakobsson. Bræður Jesú voru þarna einnig ásamt nokkrum konum, þar á meðal móður Jesú.Mat 10:2

Nýr postuli valinn

Þau voru öll samhuga og staðföst í bæninni. Dag einn, er þarna voru saman komin um 120 manns, stóð Pétur upp og ávarpaði viðstadda þessum orðum:

„Það hlaut óhjákvæmilega að rætast sem Biblían segir um Júdas, sem sveik Jesú, og olli því að múgurinn handtók hann. Þessu spáði Davíð konungur fyrir innblástur heilags anda. Psa 41:9; Jhn 13:18; Jhn 18:3Júdas var í okkar hópi og honum var falin sama þjónusta og okkur. Þessi maður keypti akur fyrir féð, sem hann fékk fyrir svikin, og þar steyptist hann til jarðar, svo að kviður hans rifnaði og innyflin féllu út. Mat 27:5Þetta varð kunnugt um alla Jerúsalem og fólkið kallaði staðinn „blóðakur“. Spádómur Davíðs konungs í Sálmunum segir svo: „Heimili hans fari í eyði og þar skal enginn búa.“ Einnig: „Öðrum skal falið að vinna hans verk.“Psa 69:25; Psa 109:8

Af þessum sökum verðum við að velja einhvern annan í stað Júdasar, til að vera vitni ásamt okkur um upprisu Jesú. Við skulum velja einhvern, sem hefur verið með okkur alla tíð, frá því við kynntumst Drottni fyrst – eða frá þeirri stundu er Jóhannes skírði hann og til þess dags er hann var uppnuminn frá okkur til himna.“

Áheyrendur tilnefndu tvo menn: Jósef Jústus (líka kallaður Barsabbas) og Mattías. Síðan báðu þeir Guð að rétti maðurinn yrði valinn. „Ó, Drottinn,“ sögðu þeir, „þú þekkir hjörtu allra. Sýndu okkur, hvorn þessara manna þú hefur valið til postula í stað Júdasar, svikarans, sem nú er á sínum eigin stað.“

Þá vörpuðu þeir hlutkesti og kom upp hlutur Mattíasar. Hann var þar með valinn postuli ásamt hinum ellefu.