OLOFyrr á tímum talaði Guð með ýmsu móti til forfeðra okkar fyrir milligöngu spámannanna (til dæmis í sýnum, draumum eða jafnvel augliti til auglitis) og sagði þeim þannig smátt og smátt frá fyrirætlunum sínum.
1:2
OLOÁ okkar dögum hefur hann hins vegar talað til okkar með tungu sonar síns, sem hann hefur gefið alla hluti. Sonarins vegna skapaði hann heiminn og allt sem í honum er.
1:3
OLOSonur Guðs endurspeglar dýrð Guðs og allt, sem sonurinn er og gerir, ber þess vitni að hann er Guð. Hann ríkir yfir alheimi með orðum sínum. Hann er sá sem dó til að hreinsa okkur og sýkna af ákæru syndarinnar og settist síðan í hið æðsta heiðurssæti við hlið Guðs almáttugs á himnum.
1:4
OLOÞannig varð hann englunum mun æðri og það sannar líka nafnið sem faðir hans gaf honum: „Sonur Guðs“, en það nafn er langtum æðra en nöfn og titlar englanna.
1:5
OLO[1:5–6]Guð hefur aldrei sagt svo við neinn af englum sínum: „Þú ert sonur minn og í dag gef ég þér heiður þann og tign sem fylgir nafni mínu.“ Þetta sagði hann hins vegar við Jesú og öðru sinni sagði hann: „Ég er faðir hans; hann er sonur minn.“ Þegar Guðs eingetni sonur kom til jarðarinnar sagði hann enn fremur: „Allir englar Guðs skulu tilbiðja hann.“
1:6
OLO
1:7
OLOUm engla sína segir Guð, að þeir séu sendiboðar, skjótir sem vindurinn og líkir eldslogum,
1:8
OLOen um son sinn segir hann: „Ríki þitt, ó Guð, mun standa að eilífu og tilskipanir þínar eru góðar og réttlátar.
1:9
OLOGuð, þú elskar réttlætið en hatar ranglætið, þess vegna hefur Guð þinn veitt þér meiri gleði en nokkrum öðrum.“
1:10
OLOGuð kallaði hann einnig „Drottin“ og sagði: „Drottinn, í upphafi skapaðir þú jörðina og himnarnir eru verk handa þinna.
1:11
OLOÞeir munu leysast upp og hverfa, en þú verður áfram. Þeir munu slitna eins og gömul flík,
1:12
OLOsem þú dag einn leggur frá þér og færð þér nýja. Sjálfur munt þú aldrei breytast og ævi þín engan endi taka.“
1:13
OLOHefur Guð nokkurn tíma sagt slíkt við engil, sem hann segir við son sinn: „Sittu hér í heiðurssætinu við hlið mér, þar til ég hef lagt alla óvini þína að fótum þér“?
1:14
OLONei, því englarnir eru aðeins andlegir sendiboðar Guðs, sendir til hjálpar og aðstoðar þeim, sem erfa eiga hjálpræði hans.
Þýðingarnar þínar eru þær úr síðasta samanburði sem þú opnaðir með „Bera saman“ eða valdir að muna; á meðan engar slíkar eru til verða það þýðingarnar úr fyrsta samanburðinum sem er opnaður beint – úr bókamerki eða af tengli utan vefsins. Ef þýðingarnar eru að minnsta kosti tvær og þær hafa allar þennan stað opnast samanburðurinn án valforms.
Merktu þýðingar með stjörnu til að bæta þeim við eftirlæti.
Letur
Leturstærð
Í upphafi var Orðið og Orðið var hjá Guði og Orðið var Guð
Spilarar birtast án smells og fara ekki sjálfkrafa í gang; síða með myndbandi hefur strax samband við youtube.com. Á meðan stillingin er virk hlaðast myndbönd inn frá YouTube.
Hlaða myndböndum frá
Ef YouTube svarar ekki hleðst myndbandið inn frá þjóni vefsins, ef afrit er til staðar þar.
Endurstilla stillingar
Allar stillingar verða færðar aftur í sjálfgefin gildi. Ertu viss?