JasGc JakobsbréfGiacomo, kaflicapitolo Hið almenna bréf JakobsLettera di Giacomo, kaflicapitolo 1

Traduzioni Confronta

Frá Jakobi, þjóni Guðs og Drottins Jesú Krists.

Til kristinna Gyðinga, hvar sem þeir eru. Sæl verið þið!

Mótlæti styrkir skapgerð ykkar

Kæru vinir, hafið þið mætt miklum freistingum og erfiðleikum? Ef svo er, gleðjist þá! Act 5:41; 1Co 10:13En hvers vegna? Vegna þess að trú ykkar og þolinmæði vex ekki nema þið þolið mótlæti. 1Pe 1:7; Rom 5:3Leyfið henni að vaxa! Reynið ekki að flýja vandamálin, því að þegar þolinmæði ykkar hefur náð fullum þroska, getur ekkert sett ykkur úr jafnvægi. Þá hafið þið eignast stöðuga skapgerð.

Ef ykkur langar til að vita hver er vilji Guðs með ykkur, þá spyrjið hann og hann mun fúslega segja ykkur það. Hann er reiðubúinn að miðla vísdómi sínum, þeim sem um það biðja. Þegar þið biðjið, þá verðið þið að vænta bænheyrslu. Ef þið efist, eruð þið eins og sjávaralda, sem rís og hrekst fyrir vindi.Mat 7:7; Mrk 11:24; Luk 11:9; Jhn 14:13; Jhn 16:23

Þá verða líka allar ákvarðanir ykkar óákveðnar og þið vitið varla í hvorn fótinn þið eigið að stíga. Ef þið biðjið ekki í trú, skuluð þið ekki heldur vænta svars frá Drottni.

Kristnu vinir, sé einhver ykkar lítils metinn í þessum heimi, hefur hann ástæðu til að gleðjast, því að hann er mikils virði í augum Drottins. Og sá ríki gleðjist af því að Drottinn er ekki háður auðæfum hans. Innan skamms er hann dáinn, eins og blómið, sem skrælnar í sólarbreiskjunni og missir fegurð sína. Þannig fer fyrir hinum ríku, þeir lifa um stund, en deyja svo frá öllu sínu amstri.Psa 90:5-6; Psa 103:15; 1Pe 1:24

Sæll er sá sem stenst freistingu, það styrkir hann gegn hinu illa. Að launum mun hann hljóta kórónu lífsins, sem Guð hefur lofað þeim sem elska hann. 2Ti 4:8; Heb 12:5Munið að Guð freistar aldrei nokkurs manns, enda verður hann sjálfur aldrei fyrir freistingu hins illa. Luk 11:4Freistingarnar spretta af illum ásetningi og óhreinum hugsunum. Slíkar hvatir leiða til illverka og refsingin, sem af þeim leiðir, er dauðinn. Rom 6:21; Rom 6:23Kæru vinir, gætið þess að villast ekki af leið!

Hið góða kemur frá Guði

Allt, sem gott er og fullkomið, kemur frá Guði, skapara ljóssins. Ljómi hans er eilífur og óumbreytanlegur og á hann fellur ekki skuggi. Jhn 3:27Með krafti orða sinna kveikti hann nýtt líf í hjörtum okkar – endurfæddi okkur og þar með urðum við fyrstu börnin í hans nýju fjölskyldu.Jhn 1:13; 1Pe 1:23; Heb 12:23

Kæru vinir, hér er góð regla: Hlustið og takið vel eftir öllu, segið fátt og reiðist ekki. Guð vill að við séum góð, en reiðin er aðeins til ills.

Leggið nú af allt illt, hvort sem það er í orði, verki eða hugsun, en gleðjist heldur yfir þeim mikla boðskap sem við höfum meðtekið, því að nái hann tökum á okkur, getur hann frelsað sálir okkar.Rom 1:16; Eph 4:22

Og munið: Ekki nægir aðeins að hlusta á boðskapinn, honum verður einnig að hlýða, athugið það! Mat 7:21; Luk 11:28; Rom 2:13Sá sem lætur sér nægja að hlusta, en fer ekki eftir því sem hann heyrir, er líkur manni sem horfir á sjálfan sig í spegli, en gleymir svo útliti sínu jafnskjótt og hann er genginn frá speglinum. En sá sem sífellt rannsakar orð Guðs og hjálpræðisverk hans og fer eftir því, mun hljóta blessun við allt sem hann gerir.Jhn 13:17; 2Co 3:18

Sá sem telur sig kristinn, en hefur ekki taumhald á tungu sinni, blekkir sjálfan sig og trú hans er einskis virði. Psa 34:13; Psa 39:1; 1Pe 3:10Í augum Guðs birtist sönn trú í því að annast ekkjur og munaðarlausa, og vera Drottni trúr – og óhreinka sig ekki af hinu illa.Jas 2:17