여러 번역본으로 본 시편 74
Lifandi Orð
74:1
OLO
Guð, hvers vegna hefur þú hafnað okkur fyrir fullt og allt? Af hverju ertu reiður? Við erum þó þín eigin hjörð?
74:2
OLO
Mundu, að við erum þjóðin þín – fólkið sem þú forðum leystir úr útlegð og valdir þér til eignar og gleði. Þú útvaldir Jerúsalem sem bústað þinn á jörðu.
74:3
OLO
Fáðu þér göngu og skoðaðu rústirnar! Sjáðu, óvinirnir hafa eyðilagt borgina og musteri þitt.
74:4
OLO
Þar, já, inni í helgidómnum, æptu þeir heróp, reistu stríðsfána sína og guðamyndir og fögnuðu sigri!
74:5
OLO [74:5–6]
Allt er eins og rjúkandi rúst, eins og brunninn skógur. Með öxum sínum og sleggjum hjuggu þeir og brutu allan útskurðinn.
74:6
OLO
74:7
OLO
Þeir kveiktu í musterinu og gjöreyddu helgidóm þinn, Drottinn.
74:8
OLO
„Þurrkum út allt sem minnir á Drottin!“ öskruðu þeir og brenndu síðan öll samkomuhús Guðs í landinu.
74:9
OLO [74:9–10]
Ekkert er nú eftir sem sýnir að við séum þín útvalda þjóð. Spámennirnir eru horfnir og hver getur þá sagt okkur hvenær þessi ósköp munu enda? Hve lengi ætlar þú Guð að leyfa óvinum þínum að óvirða nafn þitt? Ætlar þú að láta þá komast upp með þetta að eilífu?
74:10
OLO
74:11
OLO
Eftir hverju ertu að bíða? Af hverju gerir þú ekkert? Ó, rektu þá burt með þinni sterku hendi!
74:12
OLO
Guð, þú ert konungur minn frá alda öðli. Hjálpar þinnar hef ég notið á öllum mínum ferðum.
74:13
74:14
OLO
74:15
OLO
Eftir skipun þinni opnuðust lindir og þar gat þjóð þín svalað þorstanum. Og þú þurrkaðir fyrir þau farveg Jórdanar, sem annars streymir endalaust.
74:16
OLO
Þú stjórnar bæði nóttu og degi og sólina og stjörnurnar hefur þú skapað.
74:17
OLO
Öll náttúran er á valdi þínu og vetur og sumar eru þín verk.
74:18
OLO
Drottinn líttu á, óvinir þínir spotta þig, ofstopalýður óvirðir nafn þitt!
74:19
OLO
Ó, Drottinn, frelsaðu mig! Verndaðu turtildúfuna þína fyrir ránfuglunum. Bjargaðu eignarlýð þínum úr klóm varganna.
74:20
OLO
Minnstu loforða þinna! Landið er hulið myrkri og ofbeldismenn út um allt.
74:21
OLO
Drottinn, þjóð þín er kúguð, en láttu hana ekki þurfa að þola þessa svívirðing endalaust. Leyfðu hinum fátæku og hrjáðu að lofa nafn þitt!
74:22
OLO
Komdu, ó Guð, og ákærðu óvini okkar. Hlustaðu á óþverrann sem þessi illmenni ausa yfir þig alla daga!
74:23
OLO
Gleymdu ekki formælingum óvina þinna, þær glymja hærra og hærra.