Psalmit 74 eri käännöksissä

Valitse vertailtavat käännökset

Valitse käännös lisätäksesi sen luetteloon; sarakkeet noudattavat luettelon järjestystä.

  1. Lifandi Orð

Íslenska

Русский

Čeština

Беларуская

English

Українська

Deutsch

Polski

Español

Português

Türkçe

中文

Français

Italiano

Српски / Srpski

Hrvatski

Svenska

Magyar

Tagalog

Cebuano

Hiligaynon

Nederlands

Tiếng Việt

ไทย

한국어

हिन्दी

Suomi

  • Elävä uutinen

Русский

  • Десницкий
  • Кассиан

English

  • African International (Paraphrase, American)
  • African International (Paraphrase, British)
  • African International (Literal, American)
  • African International (Literal, British)
  • Majority Text
  • Targum Onkelos (Etheridge)
  • Text-Critical English

Deutsch

  • Byzantinischer Text

Polski

  • Słowo Życia

Español

  • Biblia Libre (Nuevo Testamento)

Português

  • Tradução para Tradutores

Türkçe

  • Temel Tercüme

中文

  • 易读圣经

Ἀρχαία Ἑλληνική

  • Textus Receptus
  • Patriarchal 1904
  • Solid Rock
  • Family 35
  • Text-Critical Greek

Hrvatski

  • Knjiga o Kristu

Čeština

  • Slovo na cestu

Eesti

  • Kaasaegne eesti

Magyar

  • Élet, igazság és világosság

Slovenčina

  • Nádej pre každého

Norsk bokmål

  • En Levende Bok

Nederlands

  • Gods Boek

Български

  • Съвременен

Bahasa Indonesia

  • Mudah Dibaca
Lifandi Orð
74:1
OLO Guð, hvers vegna hefur þú hafnað okkur fyrir fullt og allt? Af hverju ertu reiður? Við erum þó þín eigin hjörð?
74:2
OLO Mundu, að við erum þjóðin þín – fólkið sem þú forðum leystir úr útlegð og valdir þér til eignar og gleði. Þú útvaldir Jerúsalem sem bústað þinn á jörðu.
74:3
OLO Fáðu þér göngu og skoðaðu rústirnar! Sjáðu, óvinirnir hafa eyðilagt borgina og musteri þitt.
74:4
OLO Þar, já, inni í helgidómnum, æptu þeir heróp, reistu stríðsfána sína og guðamyndir og fögnuðu sigri!
74:5
OLO [74:5–6] Allt er eins og rjúkandi rúst, eins og brunninn skógur. Með öxum sínum og sleggjum hjuggu þeir og brutu allan útskurðinn.
74:6
OLO
74:7
OLO Þeir kveiktu í musterinu og gjöreyddu helgidóm þinn, Drottinn.
74:8
OLO „Þurrkum út allt sem minnir á Drottin!“ öskruðu þeir og brenndu síðan öll samkomuhús Guðs í landinu.
74:9
OLO [74:9–10] Ekkert er nú eftir sem sýnir að við séum þín útvalda þjóð. Spámennirnir eru horfnir og hver getur þá sagt okkur hvenær þessi ósköp munu enda? Hve lengi ætlar þú Guð að leyfa óvinum þínum að óvirða nafn þitt? Ætlar þú að láta þá komast upp með þetta að eilífu?
74:10
OLO
74:11
OLO Eftir hverju ertu að bíða? Af hverju gerir þú ekkert? Ó, rektu þá burt með þinni sterku hendi!
74:12
OLO Guð, þú ert konungur minn frá alda öðli. Hjálpar þinnar hef ég notið á öllum mínum ferðum.
74:13
OLO [74:13–14] Þú klaufst hafið með mætti þínum, molaðir haus sjávarguðsins!
74:14
OLO
74:15
OLO Eftir skipun þinni opnuðust lindir og þar gat þjóð þín svalað þorstanum. Og þú þurrkaðir fyrir þau farveg Jórdanar, sem annars streymir endalaust.
74:16
OLO Þú stjórnar bæði nóttu og degi og sólina og stjörnurnar hefur þú skapað.
74:17
OLO Öll náttúran er á valdi þínu og vetur og sumar eru þín verk.
74:18
OLO Drottinn líttu á, óvinir þínir spotta þig, ofstopalýður óvirðir nafn þitt!
74:19
OLO Ó, Drottinn, frelsaðu mig! Verndaðu turtildúfuna þína fyrir ránfuglunum. Bjargaðu eignarlýð þínum úr klóm varganna.
74:20
OLO Minnstu loforða þinna! Landið er hulið myrkri og ofbeldismenn út um allt.
74:21
OLO Drottinn, þjóð þín er kúguð, en láttu hana ekki þurfa að þola þessa svívirðing endalaust. Leyfðu hinum fátæku og hrjáðu að lofa nafn þitt!
74:22
OLO Komdu, ó Guð, og ákærðu óvini okkar. Hlustaðu á óþverrann sem þessi illmenni ausa yfir þig alla daga!
74:23
OLO Gleymdu ekki formælingum óvina þinna, þær glymja hærra og hærra.