OLOGuð, hvers vegna hefur þú hafnað okkur fyrir fullt og allt? Af hverju ertu reiður? Við erum þó þín eigin hjörð?
74:2
OLOMundu, að við erum þjóðin þín – fólkið sem þú forðum leystir úr útlegð og valdir þér til eignar og gleði. Þú útvaldir Jerúsalem sem bústað þinn á jörðu.
74:3
OLOFáðu þér göngu og skoðaðu rústirnar! Sjáðu, óvinirnir hafa eyðilagt borgina og musteri þitt.
74:4
OLOÞar, já, inni í helgidómnum, æptu þeir heróp, reistu stríðsfána sína og guðamyndir og fögnuðu sigri!
74:5
OLO[74:5–6]Allt er eins og rjúkandi rúst, eins og brunninn skógur. Með öxum sínum og sleggjum hjuggu þeir og brutu allan útskurðinn.
74:6
OLO
74:7
OLOÞeir kveiktu í musterinu og gjöreyddu helgidóm þinn, Drottinn.
74:8
OLO„Þurrkum út allt sem minnir á Drottin!“ öskruðu þeir og brenndu síðan öll samkomuhús Guðs í landinu.
74:9
OLO[74:9–10]Ekkert er nú eftir sem sýnir að við séum þín útvalda þjóð. Spámennirnir eru horfnir og hver getur þá sagt okkur hvenær þessi ósköp munu enda? Hve lengi ætlar þú Guð að leyfa óvinum þínum að óvirða nafn þitt? Ætlar þú að láta þá komast upp með þetta að eilífu?
74:10
OLO
74:11
OLOEftir hverju ertu að bíða? Af hverju gerir þú ekkert? Ó, rektu þá burt með þinni sterku hendi!
74:12
OLOGuð, þú ert konungur minn frá alda öðli. Hjálpar þinnar hef ég notið á öllum mínum ferðum.
74:13
OLO[74:13–14]Þú klaufst hafið með mætti þínum, molaðir haus sjávarguðsins!
74:14
OLO
74:15
OLOEftir skipun þinni opnuðust lindir og þar gat þjóð þín svalað þorstanum. Og þú þurrkaðir fyrir þau farveg Jórdanar, sem annars streymir endalaust.
74:16
OLOÞú stjórnar bæði nóttu og degi og sólina og stjörnurnar hefur þú skapað.
74:17
OLOÖll náttúran er á valdi þínu og vetur og sumar eru þín verk.
Vaše překlady jsou sada z posledního porovnání, které jste otevřeli tlačítkem „Porovnat“ nebo si zapamatovali; dokud žádná sada není, stane se jí první porovnání otevřené přímo – ze záložky nebo z odkazu mimo web. Pokud sada obsahuje alespoň dva překlady a toto místo obsahují všechny, porovnání se otevře bez formuláře pro výběr.
Označte hvězdičkou překlady, které chcete mít v oblíbených.
Písmo
Velikost textu
Na počátku bylo Slovo, a to Slovo bylo u Boha, a to Slovo byl Bůh
Přehrávače se zobrazí bez kliknutí a samy se nespustí; stránka s videem se okamžitě připojí k youtube.com. Dokud je nastavení zapnuté, videa se načítají z YouTube.
Odkud načítat videa
Pokud YouTube neodpovídá, video se načte ze serveru webu, je-li tam kopie.
Obnovení nastavení
Všechna nastavení budou vrácena na výchozí hodnoty. Opravdu chcete pokračovat?