OLOGuð er góður við Ísrael! Hann er góður þeim sem hreinlyndir eru.
73:2
OLOEn hvað um mig? Ég var kominn á ystu nöf. Það munaði engu að mér skrikaði fótur og ég félli!
73:3
OLOÉg hafði fyllst gremju út af velgengni hinna hrokafullu.
73:4
OLOÞeim virtist ganga allt í haginn. Þeir eru hraustir og sterkir.
73:5
OLOÞeir virðast lausir við alla erfiðleika og áföll sem henda aðra.
73:6
OLOHrokinn er eins og glitrandi festi um háls þeirra og þeir eru sveipaðir ofríki eins og skikkju.
73:7
OLOÞeir belgjast út af offitu og augu þeirra tútna af ágirnd.
73:8
OLOÞeir hæðast að Guði og hafa í hótunum við fólk hans. Hroki er í hverju orði.
73:9
OLOÞeir stæra sig gegn himninum og blaðrið í þeim heyrist um allar jarðir.
73:10
OLOÞjóð Guðs er orðlaus og gleypir í sig boðskap þeirra.
73:11
OLO[73:11–12]„Guð virðist láta þá í friði,“ segir fólk, „já, þessir guðleysingjar lifa áhyggjulausu lífi og verða ríkari með hverjum degi.“
73:12
OLO
73:13
OLOHef ég eytt tíma mínum til einskis? Er til nokkurs að kappkosta að lifa heiðvirðu lífi?
73:14
OLOAllt sem ég hef upp úr því er erfiði og strit – alla daga, sí og æ!
73:15
OLOEf ég talaði með þessum hætti, væri ég að bregðast lýð þínum.
73:16
OLOEn þetta er samt svo torskilið – velgengni þeirra sem hata Drottin.
73:17
OLOEn dag einn fór ég í helgidóm Drottins til að íhuga, og þá hugleiddi ég framtíð þessara vondu manna.
73:18
OLOSá vegur sem þeir ganga mun enda í skelfingu. Skyndilega mun þeim skrika fótur og þeir hrasa og steypast fram af brúninni, niður í hyldýpið.
73:19
OLOÞað verður snöggur endir á allri „gæfunni“, skyndileg tortíming.
73:20
OLOLíf þeirra líkist draumi. Þeir munu vakna til veruleikans, eins og þegar menn vakna af draumsvefni og sjá að allt var ímyndun ein!
73:21
OLOÞegar ég skyldi þetta, fylltist ég hryggð og leið illa.
73:22
OLOÉg sá hve heimskur og fávís ég var. Ég hlýt að vera eins og skynlaus skepna í þínum augum, Guð!
73:23
OLOEn samt elskar þú mig! Þú heldur í hægri hönd mína og varðveitir mig.
73:24
OLOOg áfram munt þú leiða mig með vísdómi þínum og speki.
73:25
OLOHvern á ég að á himnum nema þig? Og þú ert sá sem ég þrái mest á jörðu!
73:26
OLOHeilsu minni hrakar og hjarta mitt þreytist, en Guð lifir! Hann er styrkur minn, ég fæ að tilheyra honum að eilífu.
73:27
OLODrottinn, þeir sem hafna þér munu farast, því að þú eyðir þeim sem þjóna öðrum guðum.
73:28
OLOEn hvað um mig? Ég vil komast eins nálægt Guði og ég get! Ég hef kosið að trúa á Drottin. Hann er skjól mitt. Ég vil vitna um það í allra áheyrn að margsinnis hefur hann bjargað mér á undursamlega hátt.
Twoje przekłady to zestaw z ostatniego porównania otwartego przyciskiem „Porównaj” lub zapamiętanego; dopóki zestawu nie ma, staje się nim pierwsze porównanie otwarte bezpośrednio – z zakładki lub z linku spoza serwisu. Gdy zestaw obejmuje co najmniej dwa przekłady i wszystkie mają to miejsce, porównanie otwiera się bez formularza wyboru.
Oznacz gwiazdką przekłady, które chcesz mieć w ulubionych.
Czcionka
Rozmiar tekstu
Na początku było Słowo, a Słowo było u Boga i Bogiem było Słowo
Odtwarzacze pojawiają się bez kliknięcia i nie uruchamiają się same; strona z wideo od razu łączy się z youtube.com. Gdy ustawienie jest włączone, wideo jest ładowane z YouTube.
Skąd ładować wideo
Jeśli YouTube nie odpowiada, wideo załaduje się z serwera witryny, o ile jest tam kopia.
Resetowanie ustawień
Wszystkie ustawienia zostaną przywrócone do wartości domyślnych. Czy na pewno?