Псалтирь 73 в разных переводах

Выберите переводы для сравнения

Нажмите на перевод, чтобы добавить его в список; колонки идут в порядке списка.

  1. Lifandi Orð

Íslenska

Русский

Čeština

Беларуская

English

Українська

Deutsch

Polski

Español

Português

Türkçe

中文

Français

Italiano

Српски / Srpski

Hrvatski

Svenska

Magyar

Tagalog

Cebuano

Hiligaynon

Nederlands

Tiếng Việt

ไทย

한국어

हिन्दी

Русский

  • Десницкий
  • Кассиан

English

  • African International (Paraphrase, American)
  • African International (Paraphrase, British)
  • African International (Literal, American)
  • African International (Literal, British)
  • Majority Text
  • Targum Onkelos (Etheridge)
  • Text-Critical English

Deutsch

  • Byzantinischer Text

Polski

  • Słowo Życia

Español

  • Biblia Libre (Nuevo Testamento)

Português

  • Tradução para Tradutores

Türkçe

  • Temel Tercüme

中文

  • 易读圣经

Ἀρχαία Ἑλληνική

  • Textus Receptus
  • Patriarchal 1904
  • Solid Rock
  • Family 35
  • Text-Critical Greek

Hrvatski

  • Knjiga o Kristu

Čeština

  • Slovo na cestu

Eesti

  • Kaasaegne eesti

Magyar

  • Élet, igazság és világosság

Slovenčina

  • Nádej pre každého

Suomi

  • Elävä uutinen

Norsk bokmål

  • En Levende Bok

Nederlands

  • Gods Boek

Български

  • Съвременен

Bahasa Indonesia

  • Mudah Dibaca
Lifandi Orð
73:1
OLO Guð er góður við Ísrael! Hann er góður þeim sem hreinlyndir eru.
73:2
OLO En hvað um mig? Ég var kominn á ystu nöf. Það munaði engu að mér skrikaði fótur og ég félli!
73:3
OLO Ég hafði fyllst gremju út af velgengni hinna hrokafullu.
73:4
OLO Þeim virtist ganga allt í haginn. Þeir eru hraustir og sterkir.
73:5
OLO Þeir virðast lausir við alla erfiðleika og áföll sem henda aðra.
73:6
OLO Hrokinn er eins og glitrandi festi um háls þeirra og þeir eru sveipaðir ofríki eins og skikkju.
73:7
OLO Þeir belgjast út af offitu og augu þeirra tútna af ágirnd.
73:8
OLO Þeir hæðast að Guði og hafa í hótunum við fólk hans. Hroki er í hverju orði.
73:9
OLO Þeir stæra sig gegn himninum og blaðrið í þeim heyrist um allar jarðir.
73:10
OLO Þjóð Guðs er orðlaus og gleypir í sig boðskap þeirra.
73:11
OLO [73:11–12] „Guð virðist láta þá í friði,“ segir fólk, „já, þessir guðleysingjar lifa áhyggjulausu lífi og verða ríkari með hverjum degi.“
73:12
OLO
73:13
OLO Hef ég eytt tíma mínum til einskis? Er til nokkurs að kappkosta að lifa heiðvirðu lífi?
73:14
OLO Allt sem ég hef upp úr því er erfiði og strit – alla daga, sí og æ!
73:15
OLO Ef ég talaði með þessum hætti, væri ég að bregðast lýð þínum.
73:16
OLO En þetta er samt svo torskilið – velgengni þeirra sem hata Drottin.
73:17
OLO En dag einn fór ég í helgidóm Drottins til að íhuga, og þá hugleiddi ég framtíð þessara vondu manna.
73:18
OLO Sá vegur sem þeir ganga mun enda í skelfingu. Skyndilega mun þeim skrika fótur og þeir hrasa og steypast fram af brúninni, niður í hyldýpið.
73:19
OLO Það verður snöggur endir á allri „gæfunni“, skyndileg tortíming.
73:20
OLO Líf þeirra líkist draumi. Þeir munu vakna til veruleikans, eins og þegar menn vakna af draumsvefni og sjá að allt var ímyndun ein!
73:21
OLO Þegar ég skyldi þetta, fylltist ég hryggð og leið illa.
73:22
OLO Ég sá hve heimskur og fávís ég var. Ég hlýt að vera eins og skynlaus skepna í þínum augum, Guð!
73:23
OLO En samt elskar þú mig! Þú heldur í hægri hönd mína og varðveitir mig.
73:24
OLO Og áfram munt þú leiða mig með vísdómi þínum og speki.
73:25
OLO Hvern á ég að á himnum nema þig? Og þú ert sá sem ég þrái mest á jörðu!
73:26
OLO Heilsu minni hrakar og hjarta mitt þreytist, en Guð lifir! Hann er styrkur minn, ég fæ að tilheyra honum að eilífu.
73:27
OLO Drottinn, þeir sem hafna þér munu farast, því að þú eyðir þeim sem þjóna öðrum guðum.
73:28
OLO En hvað um mig? Ég vil komast eins nálægt Guði og ég get! Ég hef kosið að trúa á Drottin. Hann er skjól mitt. Ég vil vitna um það í allra áheyrn að margsinnis hefur hann bjargað mér á undursamlega hátt.