Mat MatteusMatúš, kaflikapitola MatteusarguðspjallEvanjelium podľa Matúša, kaflikapitola 7

Preklady

Dæmið ekki

Verið ekki aðfinnslusamir, og þá munu aðrir ekki heldur finna að við ykkur. Luk 6:37; Rom 2:1; 1Co 4:5Eins og þú ert við aðra, munu þeir verða gagnvart þér. Mrk 4:24; Luk 6:38Hvers vegna hefur þú áhyggjur af flísinni í auga bróður þíns? Þú ert sjálfur með planka í auganu! – Já, heilan bjálka! Luk 6:41Er rétt af þér að segja: „Vinur, leyfðu mér að hjálpa þér að fjarlægja þessa flís úr auganu á þér,“ meðan þú sérð alls ekki til vegna plankans sem er í þínu eigin auga? Hræsnari! Losaðu þig fyrst við plankann, og eftir það muntu sjá vel til að hjálpa bróður þínum.

Láttu ekkert heilagt í hendur spilltra manna. Kastaðu ekki perlum fyrir svín, því þau munu troða þær niður í svaðið og ráðast að því búnu gegn þér.

Gefist ekki upp

Biðjið og þið munuð öðlast. Leitið og þið munuð finna. Knýið á og þá mun verða lokið upp. Mat 21:22; Mrk 11:24; Luk 11:9; Jhn 14:13; Jas 1:6Því sá öðlast sem biður. Sá finnur sem leitar og fyrir þeim, sem á knýr, mun opnað verða. Hvaða maður gæfi barni sínu stein, ef það bæði um brauð? Luk 11:11Eða höggorm, ef það bæði um fisk? Enginn! Fyrst þið sem eruð vondir og syndugir menn, hafið vit á að gefa börnunum ykkar góðar gjafir, hversu miklu fremur mun þá faðir ykkar á himnum gefa þeim góðar gjafir sem biðja hann?

Vertu við aðra eins og þú vilt að þeir séu við þig – þetta er kjarninn í lögum Móse.Luk 6:31

Mjói vegurinn

Eina leiðin til himins liggur um þrönga hliðið. Vegurinn til glötunar er breiður og hlið hans vítt – greiðfær leið öllum sem hana velja. Luk 13:24Vegurinn til lífsins er mjór og hlið hans þröngt, fáir eru þeir sem finna hann.

Gætið ykkar á falskennendum sem dulbúa sig sem saklaus lömb, en eru hið innra sem gráðugir úlfar. Mat 24:4; 1Jn 4:1Þið getið þekkt þá á afleiðingum orða þeirra og verka – á sama hátt og þið þekkið tré af ávöxtum þess. Það er óþarfi fyrir ykkur að ruglast á vínviði og þyrnirunna, eða á fíkjutré og þistlum. Tré þekkist af ávöxtunum. Tré sem ber ljúffenga ávexti, ber ekki óæta ávexti, og tré sem ber vonda ávexti, ber ekki góða á sama tíma. Luk 6:43Tré það, sem ber eintómt óæti, er rifið upp og notað í eldinn. Mat 3:10; Jhn 15:6Leiðin til að þekkja tré eða mann er að kanna ávextina.

Aldrei þekkt ykkur

Ekki eru allir guðræknir, sem tala guðrækilega. Þeir ávarpa mig: „Herra“ – en munu samt ekki komast til himins, heldur aðeins þeir sem gera það sem faðir minn á himnum vill að þeir geri. Luk 6:46; Jhn 6:40; Jas 1:22; Rom 2:13Margir munu segja við mig á dómsdegi: „Herra, herra, við sögðum fólkinu frá þér, við rákum út illa anda með þínu nafni og unnum mörg önnur mikil kraftaverk.“ Ég mun svara þeim: „Ég hef aldrei þekkt ykkur né þið haft samfélag við mig. Farið burt, því verk ykkar eru vond.“Psa 6:8; Luk 13:25; Luk 13:27

Þeir sem hlusta á orð mín og fara eftir þeim, líkjast hyggnum manni sem byggir húsið sitt á klöpp. Luk 6:47Þó að rigni og vatnavextir verði, stormurinn æði og lemji húsið, mun það ekki haggast, því það er byggt á traustum grunni.

Þeir sem heyrt hafa orð mín, en fara samt ekki eftir þeim, eru heimskir. Þeir eru eins og maður sem byggir húsið sitt á sandi. Og þegar stormurinn blæs og flóðbylgjan kemur æðandi og skellur á því, hrynur það með braki og brestum.“

Mannfjöldinn undraðist predikun Jesú, því að hann talaði af miklum myndugleika, eins og sá sem valdið hefur, en ekki eins og fræðimennirnir.Mat 22:33; Mrk 1:22; Luk 4:32