Psa SálmarnirŽalmy, sálmuržalm SálmarnirKniha žalmů, sálmuržalm 71

Překlady Porovnat

Drottinn, þú ert skjól mitt! Ekki yfirgefa mig! Psa 31:1Frelsaðu mig frá óvinum mínum, því að þú er réttlátur. Bjargaðu mér! Snúðu eyra þínu að mér og hlustaðu á mína einlægu bæn. Vertu mér vígi og skjól gegn öllum árásum. Mat 4:6; Luk 4:10Já, bjargaðu mér ó Guð, frá svikum þessara illmenna. Psa 91:14Drottinn, þú ert mín síðasta von. Allt frá barnsaldri treysti ég á þig. Heb 2:13Frá fæðingu hefur þú vakað yfir mér og verndað mig – skyldi ég ekki vegsama þig?! Psa 22:9Velgengni mína, sem margir undrast, á ég vernd þinni að þakka. Ég vil lofa þig liðlangan daginn, ó Guð, því að alls góðs hef ég notið úr hendi þinni. Psa 51:17Nú þegar aldurinn færist yfir, þá vísa mér ekki frá. Hafnaðu mér ekki þegar þrekið minnkar. Psa 69:3 Óvinir mínir hvísla: „Guð hefur yfirgefið hann! Nú er hann auðveld bráð. Hann hefur engan sér til hjálpar!“ Guð minn, farðu ekki frá mér! Komdu fljótt og hjálpaðu mér! Psa 70:1Útrýmdu þeim. Láttu þá verða til skammar sem óska mér óhamingju. Psa 35:4En ég mun áfram treysta þér og ekki draga úr lofgjörð minni! Oftsinnis frelsaðir þú mig úr bráðri hættu. Ég vitna og rifja upp gæsku þína og daglega umhyggju. Drottinn, styrkur þinn heldur mér uppi. Það skulu allir vita að þú einn ert góður og réttlátur. Guð minn, allt frá æsku hjálpaðir þú mér – um dásemdarverk þín hef ég ekki þagað. Psa 77:11Nú er ég orðinn gamall og hárin grá, en Drottinn yfirgefðu mig ekki! Láttu mig lifa enn um stund, svo að unga kynslóðin fái að heyra um máttarverk þín. Kraftur þinn og kærleikur, Drottinn, nær til himna. Ó, hve það er dásamlegt! Hvar er slíkan Guð að finna sem þig?! Rev 17:14Þú hefur sent okkur margvíslegt mótlæti – en ég veit að þú munt frelsa á ný og leyfa okkur að lifa! Psa 68:22Þú munt auka við heiður minn og hugga mig að nýju.

Ég leik á hörpu mína og lofa þig, því að öll þín orð og fyrirheit hafa staðist, þú hinn heilagi í Ísrael. Psa 89:18; Psa 150:3Ég vil lofa þig hárri röddu, því að þú hefur frelsað mig! Liðlangan daginn vitna ég um ást þína og réttlæti, því að óvinir mínir sem óskuðu mér ógæfu, voru auðmýktir og roðnuðu af skömm.