Psa Sálmarnir, sálmur Sálmarnir, sálmur 111
Hallelúja! Ég þakka Guði máttarverk hans, já, í áheyrn og augsýn allrar þjóðarinnar. Allir sem vilja, íhugi þetta ásamt mér. Psa 9:1; Heb 10:25Því að máttarverkin lýsa mikilleika hans, hátign og eilífum kærleika.Psa 9:8; Psa 48:10; Psa 102:27
Hver getur gleymt dásemdarverkum hans, miskunn hans? Hann annast þarfir þeirra sem honum treysta og gleymir ekki loforðum sínum. Psa 37:19; Luk 1:72Hann sýndi mátt sinn er hann gaf þjóð sinni landið Ísrael – land sem margar þjóðir byggðu. Allt gerir hann af trúfesti og réttlæti og öll fyrirmæli hans eru áreiðanleg og góð, gefin í kærleika og af réttvísi – þau munu standa að eilífu. Hann hefur frelsað þjóð sína og gert við hana eilífan sáttmála. Heilagt og óttalegt er nafn Drottins.Luk 1:68; Luk 11:2
Hvernig öðlast menn visku? Með því fyrst að óttast og heiðra Guð og síðan með því að halda lög hans. Lofað sé nafn hans að eilífu.