PsaPs SálmarnirPsaumes, sálmurpsaume SálmarnirLes Psaumes, sálmurpsaume 45

Traductions

Hjarta mitt svellur af fögrum orðum. Ég vil flytja konungi ljóð. Tunga mín er penni hraðritarans, hún flytur langa sögu á augabragði:Luk 4:22

Þú ert fegurri en mannanna börn. Blessun streymir um varir þínar. Velþóknun Guðs er yfir þér að eilífu.Psa 24:8; Heb 4:12; Rev 1:16; Rev 19:15

Þú hetja, tak herklæði þín, máttugur ertu og krýndur ljóma Sæktu fram! Sigursæll ertu, vörður tryggðar og réttlætis. Gakk fram – máttarverk þín verði á allra vörum!Psa 38:2

Örvar þínar eru hvesstar, óvinir falla að fótum þér. Heb 1:8Hásæti þitt, ó Guð, stendur um eilífð. Réttlætið er sproti þinn. Psa 15:2Þú elskar hið góða hefur andstyggð á illsku. Því hefur Guð, þinn Guð, sveipað þig gleði sem engan annan.Eph 5:2

Skikkja þín ilmar af myrru, alóe og kassíu. Hallir þínar eru skreyttar fílabeini og fyllast af ljúfum tónum. Konungadætur eru í hópi vinkvenna þinna. Drottningin stendur þér við hlið, fagurlega klædd og skreytt skíra gulli frá Ófír! „Dóttir mín, hlustaðu. Ég vil gefa þér ráð: Gleymdu heimþránni, vertu ekki döpur. Konungurinn elskar þig og gleðst yfir fegurð þinni. Sýndu honum lotningu því hann er herra þinn. Rev 19:7; Psa 72:10Íbúar Týrus, baða þig í gjöfum og auðmenn þjóðarinnar leita hylli þinnar.“Mat 22:11

Brúðurin – konungsdóttir – bíður í skrauthýsi sínu, íklædd fegursta djásni, kjól skreyttum gulli og perlum. 1Pe 3:3Fögur er hún! Meyjarnar leiða hana á fund konungs. Þær fara í skrúðgöngu gegnum hliðið. Þarna er höllin! Rom 9:5; Rev 1:6; Rev 5:10„Synir þínir verða allir konungar og feta í fótspor föður síns. Þeir munu sitja á hásætum víðs vegar um heim!“

„Ég mun gera nafn þitt kunnugt meðal allra kynslóða og þjóðir jarðarinnar munu hylla þig að eilífu.“