Psa Sálmarnir, sálmur Sálmarnir, sálmur 64
Ó, Drottinn, hlustaðu á neyðaróp mitt, því að hópur af þorpurum og bófum hafa gert samsæri gegn mér. Verndaðu mig! Psa 55:21; Psa 59:7Orð þeirra eru eins og rýtingur í bakið. Þeir hvæsa á mig og nísta hjarta mitt. Þeir senda mér kaldar kveðjur úr launsátri, vinna verk sín í skyndi, eru hvergi smeykir. Þeir sitja á svikráðum. Hittast á laun og leggja gildrur fyrir aðra. „Þetta sér enginn,“ segja þeir. Þeir upphugsa ill verk og segja „Nú er allt klappað og klárt!“ Hjörtu þeirra fyllast illsku og svikum.
En Guð mun slá þá til jarðar. Eins og hendi sé veifað hittir örin þá Psa 7:15Tunga þeirra verður þeim að falli. Menn hrista höfuðið yfir þeim og ótta slær á alla. Þeir játa mikilleik Guðs og hans voldugu verk, gefa gætur að því sem hann gerir. Psa 32:11En hinir trúuðu munu fagna í Drottni, leita hjálpar hans og hrósa sigri með honum.Psa 32:11