Psa Sálmarnir, sálmur Sálmarnir, sálmur 69
Frelsaðu mig, ó Guð, því að vatnið hækkar sífellt Psa 40:2; Psa 42:7og ég sekk æ dýpra í þessa botnlausu leðju. Ég er útgrátinn og örmagna, hálsinn þurr og sár og augun þrútin. Góði Guð, bjargaðu mér! Psa 35:19Þeir eru margir sem hata mig að ástæðulausu, fjöldi manna sem brugga mér banaráð. Þó er ég saklaus. Þeir heimta að ég bæti það sem ég hef ekki brotið!
Ó, Guð, þú þekkir heimsku mína og syndir. Drottinn Guð, þú sem ræður hersveitum himnanna, láttu mig ekki verða til hneykslunar þeim sem treysta þér. Þú Guð Ísraels, forðaðu mér frá því að valda þeim vonbrigðum, þó svo að þín vegna sé ég hæddur og smáður. Jafnvel bræður mínir sniðganga mig! Jhn 2:17; Rom 15:3Guð, þú ert í huga mér öllum stundum og um musteri þitt hugsa ég. Og vegna þess að ég held uppi málstað þínum, hata þeir mig, rétt eins og þig. Ég hef fastað og iðrast frammi fyrir þér, en þeir hæddu mig engu að síður.
Ég klæddist hærusekk – tákni auðmýktar og iðrunar – og þá ortu þeir um mig níðvísu! Ég er nýjasta fréttin í bænum og jafnvel rónarnir spotta mig! En ég held áfram að biðja til þín, Drottinn, og gefst ekki upp, því að þú hlustar! Svaraðu mér með blessun þinni og miskunnaðu mér.Psa 40:2
Dragðu mig upp úr leðjunni, Drottinn, ég finn að ég er að sökkva! Forðaðu mér frá óvinum mínum, úr þessum hræðilega pytti! Láttu ekki flóðið taka mig, hringiðuna svelgja mig! Ó, Drottinn, svaraðu bænum mínum, vegna gæsku þinnar og náðar við mig. Psa 102:2Snúðu ekki við mér bakinu, því að ég er í nauðum staddur! Flýttu þér! Komdu og frelsaðu mig! Drottinn, komdu og bjargaðu mér! Leystu mig undan ofríki óvina minna. Psa 44:15Þú sérð þá og þekkir háðsglósur þeirra, hvernig þeir níða mig niður.Mat 27:39; Luk 23:49
Háðsyrði þeirra hafa sært mig djúpu sári og andi minn örmagnast. Ó, ef einhver hefði sýnt mér samúð og einhver viljað hugga mig! Mat 27:34; Mat 27:48; Jhn 19:29Þeir færðu mér eitraðan mat – malurt – og edik við þorstanum. Rom 11:9Verði gleði þeirra að sorg og friður þeirra að skelfingu. Myrkur komi yfir þá, blinda og ringulreið. Reiði þín upptendrist gegn þeim og eldur þinn tortími þeim. Act 1:20Leggðu hús þeirra í rúst svo að þar búi enginn framar. Því að þeir ofsækja þann sem þú hefur slegið og hlæja að kvöl þess sem þú hefur gegnumstungið. Rom 1:28Skráðu hjá þér allar syndir þeirra, já láttu enga gleymast. Luk 10:20; Php 4:3; Rev 3:5Strikaðu þá út af listanum yfir þá sem fá að lifa, leyfðu þeim ekki að njóta lífsins með réttlátum.
Ó, Guð, frelsaðu mig úr þessari neyð! Ég veit að þú munt bjarga mér! Ég lofa Guð í ljóði, mikla hann með lofsöng. Það mun gleðja hann meira en margs konar fórnir. Psa 22:26Hinir auðmjúku munu sjá að Drottinn hjálpar mér og þeir munu gleðjast. Já, gleðjist, þið sem leitið Guðs! Psa 34:6Því að Drottinn heyrir hróp hinna snauðu, og snýr ekki við þeim bakinu.Psa 147:12
Himinn og jörð, lofið Drottin, og hafið og allt sem í því er! 1Co 3:10Því að Guð mun frelsa Jerúsalem og endurreisa borgirnar í Júda og þjóð hans mun búa við öryggi. Börnin munu erfa landið og þeir sem elska Drottin njóta þar friðar og velgengni.