Rom Rómverjabréfið, kafli Bréf Páls til Rómverja, kafli 9
Höfnun Gyðinga og ætlun Guðs
Og árin liðu og þessi sonur, Ísak, óx og þegar hann var orðinn fullorðinn, giftist hann konu sem hét Rebekka. Þegar Rebekka eignaðist tvíbura, sagði Guð henni að Esaú, barnið sem fæddist fyrst, myndi verða þjónn Jakobs, tvíburabróður síns. Gamla testamentið lýsir þessu svo: „Jakob mun ég blessa en ekki Esaú.“ Þetta sagði Guð áður en drengirnir fæddust, áður en þeir höfðu tækifæri til að gera gott eða illt. Af þessu má sjá að Guð var að framkvæma fyrirætlun sína, sem hann hafði ákveðið löngu áður, en hann var ekki að launa drengjunum fyrir neitt, hvorki gott né illt.